Barna- og fjölskyldustofa.
Virðulegi forseti. Í raun gildir það sama um þetta mál og næsta og um samþættingarmálið sem við vorum að greiða atkvæði um rétt í þessu. Við munum sitja hjá og snýr það aðallega að því að við erum að fara að fá málið aftur í nefnd á milli 2. og 3. umr. Við vonumst til þess að umræða á því stigi muni færa okkur yfir á grænan, þ.e. að vonandi verði hægt að koma til móts við athugasemdir sem við töldum mikilvægar, t.d. að persónuverndarvinkillinn er áfram í þessu máli. Einnig komu athugasemdir frá Barnaverndarstofu varðandi fjármögnun og stöðugildi sem er mjög mikilvægt að við skoðum og tökum umræðu um hvort við getum komið til móts við.