Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins.
Herra forseti. Mig langar að vekja athygli aftur á því að þegar kemur að þessari stofnun, Greiningar- og ráðgjafarstöð, þá eru 340 börn á biðlista og biðlistar hafa lengst á vakt þessarar ríkisstjórnar. Biðtíminn getur verið allt upp í tvö ár.
Alls leita 900 börn til BUGL árlega. 150 börn eru á biðlista eftir þjónustu á BUGL. Þar getur biðtíminn verið allt að átta mánuðir.
Þriðja lykilbarnastofnunin er Þroska- og hegðunarstöð. Þar eru 600 börn á biðlista og þar getur biðtíminn verið allt að 18 mánuðir. Nýverið kom út skýrsla landlæknis sem sýndi að 9% íslenskra ungmenna hafa reynt sjálfsvíg. Það þýðir að í 22 barna skólabekk hafa tveir nemendur reynt sjálfsvíg.
Herra forseti. Vandinn er gríðarlegur og hér erum við öll sannfærð um að gera þurfi betur. Á meðan börn eru sett hér á biðlista þá er eitthvað að. Ég legg til að við hættum að rífast á meðan þetta er í ólestri. Látum börnin ganga fyrir, ekki síst börn sem glíma við þroskafrávik og raskanir og annað slíkt. (Forseti hringir.) Við hljótum að geta upprætt í eitt skipti fyrir öll þessa biðlistamenningu barna.