almennar stjórnmálaumræður (eldhúsdagsumræður).
Hæstv. forseti. Góðir landsmenn. Það skýrist á næstu dögum hvort þetta verða síðustu dagar þessa þings, síðustu dagarnir sem þetta þing kemur saman fyrir kosningar. Við höfum deilt um ýmislegt á þessum kjörtímabili síðan við komum hér fyrst saman í desember árið 2017, en við höfum líka borið gæfu til að standa saman þegar mikið hefur legið við. Ný stjórn lofaði að hún myndi brúa bilið milli pólitískra ása og koma á stöðugleika. Hún hefur staðið við það og sýnt hvað það skiptir miklu máli að eiga fólk í forystu sem getur byggt brýr og sameinað fólk um brýna hagsmuni. Fólk sem sýnir að það skilur mikilvægi liðsheildar, mikilvægi þess að vera ekki stærri en liðið.
Við horfum fram á bjartari tíma í þjóðfélaginu. Okkur hefur tekist vel til í baráttu við heimsfaraldur og við áttum okkur flest á því að erfiðasti hjallinn er að baki. Við vorum vel í stakk búin til að takast á við þessar aðstæður. Það kom ekki til af sjálfu sér. Ef núverandi ríkisstjórn hefði hlustað á efnahagstillögur Samfylkingarinnar á undanförnum árum hefði hvorki ríkissjóður né einkageirinn haft burði til að takast á við erfiðleikana síðasta árið.
Með skjótum viðbrögðum og vel útfærðum aðgerðum hefur okkur tekist að styðja vel við heimili og fyrirtæki. Nú þegar við sjáum fram á bjartari tíma samhliða bólusetningum er kominn tími til að breyta um leikskipulag. Breyta takmörkunum í tækifæri og sóttvörnum í sókn því að fram undan er tími uppbyggingar.
Nú er tími til að færa þungann úr viðbragði við heimsfaraldrinum yfir í arðbæra fjárfestingu innviða sem svo aftur styður við fjölbreytt og stöndugt atvinnulíf. Það er forsenda þess að við rísum hratt upp úr þeirri niðursveiflu sem átt hefur sér stað. Ríkissjóður er ekki ótæmandi auðlind og án öflugs atvinnulífs og verulegra umsvifa tæmist hann fljótt. Við höfum haldið okkur á floti með lántökum undanfarið ár, en það er ekki verjandi leið til lengdar. Þess vegna þurfum við að sjá til þess að allar aðstæður séu eins og best verður á kosið til að fólk og fyrirtæki geti skapað nauðsynleg verðmæti til að standa undir þeim lífskjörum sem við höfum vanist — og sem við viljum gera enn betri.
Við þurfum samstillt átak til að gera þetta, til að hefja okkur upp úr lægðinni. Við í stjórnmálunum, sem höfum valdið til að setja reglur og leggja á álögur, höfum líka valdið til að létta á reglubyrði og lækka skatta, forgangsraða betur og fara vel með almannafé. Við þær aðstæður sem nú ríkja er það jafnvel enn mikilvægara en ella. Þess vegna þurfum við fólk til forystu sem hefur þessa sýn á samfélagið, á efnahagsstjórnina, á verðmætasköpun. Við þurfum fólk sem leitar lausna, er ekki fast í kreddum heldur tekur skynsamlegar ákvarðanir, hefur kjark til að berjast fyrir þeim, standa með þeim og framkvæma.
Ég tel t.d. að það muni reynast gæfuspor fyrir ríkið að losa um eign sína í bankakerfinu, þrátt fyrir að hér á þingi og víðar sé fólk sem telur það ýmist óráð eða finnur aldrei rétta tímann til að taka slíka ákvörðun.
Það gleður mig líka þessa dagana að hitta Bandaríkjamenn hér í borginni sem nú flykkjast til landsins, þakklátir fyrir að Ísland hafi eitt fyrst ríkja heims boðið bólusetta ferðamenn velkomna og nú fara aðrar þjóðir að okkar fordæmi.
Virðulegi forseti Hér í kvöld eru fluttar 24 ræður af 23 ræðumönnum. Í þeim heyrum við mismunandi áherslur og mismunandi sýn á samfélagið, á verkefnin sem eru að baki og þau sem eru fram undan. Sumir eru svartsýnni en aðrir, en ég vil leggja áherslu á alla þá möguleika sem felast í framtíðinni, möguleikana til að gera betur og byggja upp, til að taka betur utan um þá sem þurfa aðstoð og gefa stórhuga fólki byr undir báða vængi og byggja nauðsynlegar brýr til að við getum nýtt þá krafta og hugmyndir sem má finna um allt land í fólki á öllum aldri, hugmyndir sem enn hafa ekki orðið til en munu leiða okkur inn í framtíðina því þangað stefnum við.