almennar stjórnmálaumræður (eldhúsdagsumræður).
Herra forseti. Góðir landsmenn. Við fögnum öll að bjartari tímar séu fram undan og svartsýnisraddir spilla ekki þeim veruleika. Með samtakamætti þjóðarinnar erum við að komast í gegnum þessa fordæmalausu tíma sem umturnað hafa lífi fólks og kallað á samstöðu þjóðarinnar í traustum höndum heilbrigðisyfirvalda og almannavarna undir forystu ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur, svo ekki sé minnst á alla þá listamenn sem hafa með óhefðbundnum hætti glatt þjóðina heima í stofu þegar allt samkomuhald hefur verið í mýflugumynd.
Við Íslendingar höfum þó farið að mörgu leyti betur í gegnum þessar hremmingar en margar aðrar þjóðir og fyrir það ber að þakka. Okkur ber skylda í alþjóðasamstarfi til að gera allt sem við getum til að leggja fátækum og stríðshrjáðum þjóðum lið á þessum erfiðu tímum og sýna forystu og frumkvæði í friðar- og mannréttindabaráttu, því rödd okkar skiptir máli.
Framtíðin er falin í unga fólkinu okkar og möguleikum þeirra til að flétta saman fjölskyldulíf, nám og atvinnu og búa við góð búsetuskilyrði hvar sem það býr í landinu. Við höfum lengt fæðingarorlofið í 12 mánuði, hækkað barnabætur og komið á hlutdeildarlánum fyrir ungt fólk og tekjulága samhliða uppbyggingu almennra leiguíbúða sem tryggir öruggari búsetu og lægri húsaleigu hvar sem er á landinu.
Félagslegar aðgerðir í þágu aldraðra öryrkja og tekjulágra eru fjölmargar. Þar má nefna gríðarlega uppbyggingu hjúkrunarrýma, aðgerðir gegn félagslegri einangrun, tekjutryggingu fyrir þá verst settu, lækkun heilbrigðiskostnaðar og þrepaskipt skattkerfi sem gagnast þeim tekjulægri. Á næsta kjörtímabili þarf að koma enn frekar til móts við tekjulága, aldraða og öryrkja því að við getum gert betur þar.
Ferðaþjónustan hefur gengið í gegnum öldudal og hafa þær aðgerðir sem stjórnvöld hafa gripið til henni til stuðnings skipt sköpum fyrir möguleika greinarinnar til þess að rétta úr kútnum, nú þegar landið er að opnast að nýju. Það mikla atvinnuleysi sem komið hefur hvað harðast niður á fólki og fyrirtækjum í ferðaþjónustu er nú að minnka sem betur fer og öflugar vinnumarkaðsaðgerðir hafa skipt miklu máli.
Það er hagur allra að öflug byggð sé um land allt. Við Vinstri græn leggjum á það mikla áherslu að byggð séu upp góð búsetuskilyrði með öflugri innviðauppbyggingu í samgöngum, fjarskiptum, með raforkuöryggi, fjölþættri heilbrigðisþjónustu, menntun og nýsköpun. Það hefur verið gert stórátak í innviðauppbyggingu og ég spái því að fram undan verði miklir möguleikar í byggðum landsins að nýta þau tækifæri sem felast í öflugri ljósleiðaravæðingu, jöfnun orkukostnaðar, fjarnámi og tækifærunum sem felast í stafrænu vinnuumhverfi. Það þurfa allir aðilar, opinberir sem og í einkageiranum, að horfa út fyrir boxið og bjóða varanleg störf til framtíðar hvar sem er á landinu.
Stóraukin framlög til nýsköpunarmála skipta miklu og hafa hleypt nýju lífi í nýsköpun af öllu tagi. Nýsköpunarklasar eru að rísa víða um land með tilstuðlan opinberra aðila og einkaaðila, m.a. er verið að efla stafrænar smiðjur um landið og efla stuðning við frumkvöðla með Nýsköpunargátt.
Áhersla hefur verið lögð á að styrkja og efla innlenda matvælaframleiðslu. Auknir fjármunir hafa verið lagðir til ylræktar, grænmetisframleiðslu og nýsköpunar sem hefur birst í aukinni verðmætasköpun og fullvinnslu afurða beint frá býli. Matvælastefna fyrir Ísland hefur verið samþykkt sem undirstrikar mikilvægi innlendrar matvælaframleiðslu og matvælaöryggi þjóðarinnar.
Efling sjávarbyggða er mér hugleikin. Hef ég sem formaður atvinnuveganefndar unnið að eflingu strandveiðikerfisins með þverpólitískri samstöðu í atvinnuveganefnd á þessu kjörtímabili. Það voru gerðar veigamiklar breytingar á strandveiðum þar sem komið var á dagakerfi með auknum fyrirsjáanleika með öryggi sjómanna að leiðarljósi og jafnræði á milli landshluta. Mikil ánægja hefur ríkt meðal sjómanna og sjávarbyggðanna með þessar breytingar. Í skýrslu Byggðastofnunar sem atvinnuveganefnd lét gera kemur fram að öflugt strandveiðikerfi væri ein sterkasta byggðaaðgerð fyrir minni sjávarbyggðir. En nú blasir það við að allar líkur eru á að aflaheimildir dugi ekki fyrir strandveiðar í sumar. Ég skora á okkur hv. alþingismenn að bregðast við því nú fyrir þinglok með því að koma hér inn lagastoð svo hægt verði að tryggja nægar aflaheimildir þannig að ekki komi til þess að strandveiðar stöðvist um hábjargræðistímann.
Góðir landsmenn. Kýrnar sletta vel úr klaufunum þegar þeim er hleypt út í sumarið. Það hlakka allir til að ganga út í sumarið eftir langan og strangan Covid-vetur og kannski að sletta aðeins úr klaufunum líka. Ég óska landsmönnum gleðilegs sumars og megið þið njóta þess vel í faðmi íslenskrar náttúru. — Góðar stundir.