151. löggjafarþing — 108. fundur,  7. júní 2021.

almennar stjórnmálaumræður (eldhúsdagsumræður).

[20:59]
Horfa

Halldóra Mogensen (P):

Kæra þjóð. Ég eins og mörg ykkar var vonsvikin veturinn 2017. Eftir snarpa kosningabaráttu í kjölfar tveggja stjórnarslita töldum við Píratar að það væri kominn tími á breytingar. Við þyrftum betri stjórnmál, stjórnmál sem hlusta á fólk, stjórnmál sem taka upplýstar ákvarðanir út frá gögnum og rökum en ekki geðþótta og fjölskylduböndum. Stjórnmálamenn sem eru í tengslum við þjóðina en geyma ekki peninga á hitabeltiseyjum og velja maka vina sinna í dómarastöður. Ríkisstjórn sem myndi segja skilið við stjórnmál fortíðar og skilja stjórnmál framtíðar. Veturinn 2017 gafst okkur tækifæri til að gera þetta að veruleika. Við Píratar settumst niður með flokkum sem við töldum að deildu þessari sýn með okkur og gætu myndað ríkisstjórn sem myndi fela í sér nýtt upphaf, ný stjórnmál sem hefðu fólk og framtíðina í forgrunni, sem ættu í beinu samtali við þjóðina, myndu lögfesta nýju stjórnarskrána og ná fram nauðsynlegum breytingum í sjávarútvegi. En það varð ekki niðurstaðan. Tveir flokkar gengu frá samningaborðinu og mynduðu ríkisstjórn með flokknum sem stendur gegn þessu öllu. Niðurstaðan var því ríkisstjórn um kyrrstöðu en ekki framfarir. Niðurstaðan var fjögur ár af sömu gömlu stjórnmálunum, sömu gömlu aðferðunum, sömu gömlu lausnunum. Ég gat samt huggað mig við það að ríkisstjórnin væri þó alla vega undir forsæti Katrínar Jakobsdóttur. Þingkona með prinsipp sem brann fyrir réttlæti og talaði fyrir framförum hlyti að verða öflugt mótvægi við allt sem á undan var gengið.

Góðir landsmenn. Tónninn fyrir þetta stjórnarsamstarf var gefinn strax. Í fyrstu stefnuræðu sinni veturinn 2017 sagði forsætisráðherra málamiðlanir í eðli sínu hvorki góðar né slæmar og að stundum þyrfti að fórna minni hagsmunum fyrir meiri. Í dag, næstum fjórum árum síðar, hljótum við að spyrja okkur: Hvaða minni hagsmunum fórnaði Katrín Jakobsdóttir í skiptum fyrir þessa ríkisstjórn? Voru það minni hagsmunir að fórna nýju stjórnarskránni en leggja þess í stað fram sitt eigið auðlindaákvæði sem engu breytir um sjávarauðlind þjóðarinnar? Voru það meiri hagsmunir en minni að hunsa niðurstöður þjóðaratkvæðagreiðslu? Voru það minni hagsmunir að lyfta lífeyrisþegum úr fátæktargildrum skerðinga og óhóflegrar skattlagningar á allt of lága framfærslu?

Voru það meiri hagsmunir að senda konu úr landi sem var gengin 36 vikur á leið með valdi, að vísa kasóléttri konu og barnungum syni hennar úr landi þrátt fyrir að ljósmæður mótmæltu því harðlega? Voru hagsmunir hennar minni hagsmunir? Hvað með Kehdr-fjölskylduna, Abdalla, Rewida, Hamza, Dooa, Ibrahim og Mustafa, fjölskyldu sem hefur aðlagast íslensku samfélagi, eignast hér vinnu og vini en þurfti að fara í felur undir valdastjórn Katrínar Jakobsdóttur. Voru hagsmunir þeirra minni hagsmunir?

Hvernig stóð það vörð um meiri hagsmuni að verja fyrrverandi dómsmálaráðherra vantrausti, dómsmálaráðherra sem upp á sitt einsdæmi gróf undan heilu dómstigi og var síðan dæmd brotleg fyrir Mannréttindadómstóli Evrópu? Hvað stóru hagsmunir kröfðust þess að sjávarútvegsráðherra sæti áfram í embætti þrátt fyrir að vera bersýnilega vanhæfur til að taka á stærsta sjávarútvegshneyksli síðari ára? Þegar ríkisstjórnin setti íþyngjandi reglur fyrir þjóðina til að vernda hag og heilsu fólks í heimsfaraldri skipti engu máli þó að ráðherrar brytu sjálfir þessar reglur. Samstaða með ráðherrum felur enda í sér stærri hagsmuni en samstaða með þjóðinni, virðist vera mat forsætisráðherra, því að stundum þarf að fórna minni hagsmunum fyrir meiri.

Við upphaf faraldursins var neyðarástand í heilbrigðismálum og við lok faraldursins er neyðarástand í heilbrigðismálum; langir biðlistar, krabbameinsskimanir í uppnámi, hjúkrunarheimilin á barmi gjaldþrots, sjálfstætt starfandi læknar loka stofum sínum og Landspítalanum er áfram gert að skera niður. En þetta eru auðvitað minni hagsmunir sem má fórna rétt eins og samningum við ljósmæður og hjúkrunarfræðinga.

Góðir landsmenn. Veturinn 2017 var ég vonsvikin en í dag er ég forviða yfir því að samfélagið hafi þurft að ganga í gegnum fjögurra ára pólitíska tilraun sem engu skilaði. Við hefðum getað nýtt síðustu fjögur ár í að byggja upp betri stjórnmál, stjórnmál sem setja fólk, hugmyndir þess og hagsmuni í forgrunn, þar sem upplýstar ákvarðanir, gagnsæi og beint lýðræði veita alvöruaðhald þegar ráðamenn villast af leið, kvik stjórnmál sem geta brugðist hratt við áskorunum framtíðarinnar, stjórnmál sem Píratar hafa alltaf og munu alltaf berjast fyrir.

Við hefðum getað verið að klára þetta kjörtímabil með því að samþykkja nýju stjórnarskrána en þess í stað fengum við fjögur ár af fórnum, fórnum sem þurfti ekki að færa, fórnum sem ákveðið var að færa fyrir valdastóla.

Kæra þjóð. Fram undan eru kosningar og fjögur mikilvæg ár, fjögur verðmæt ár. Það skiptir máli hvernig við kjósum. Verður endurreisnin eftir faraldurinn á forsendum framtíðar eða frekari fórna? Okkar er valið.