151. löggjafarþing — 108. fundur,  7. júní 2021.

almennar stjórnmálaumræður (eldhúsdagsumræður).

[21:17]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf):

Virðulegur forseti. Góðir landsmenn. Er það ekki gróft fjárhagslegt ofbeldi að skatta og skerða tekjur og lífeyrissjóðslaun öryrkja og aldraðs fólks í almannatryggingakerfinu um 75% og allt að 100%? Það að halda 26.000 kr. eða minna, jafnvel engu, eftir af hverjum 100.000 kr. er ekki bara skattar og skerðingar, það er ekkert nema gróf eignaupptaka. Hvers vegna hefur ríkisstjórn eftir ríkisstjórn undanfarna áratugi byggt upp svona arfavitlaust kerfi og viðhaldið því?

Þetta gerist þrátt fyrir endurtekin loforð fyrir kosningar um að breyta þessu ómannúðlega, grófa eignaupptökukerfi sem leiðir fólk beint í sárafátækt. Lögþvingaður, eignaupptökuvarinn lífeyrissjóður er notaður til að skerða lífeyrislaun almannatrygginga strax eftir fyrstu 25.000 kr. Það bitnar harðast og verst á þeim sem síst skyldi, láglaunafólki og af þeim eru konur fjölmennasti hópurinn.

Hvers vegna er öllu snúið á hvolf í þessum stórfurðulega bútasaumaða óskapnaði sem almannatryggingakerfið er orðið, kerfi sem ríkisstjórnir síðustu áratuga hafa komið á, viðhaldið og gert viljandi svo flókið að bara tölva getur reiknað út keðjuverkandi skerðingar til þeirra verst settu og sent þá beint í sárafátækt? Á sama tíma borga þeir sem grætt hafa á tá og fingri á sameiginlegum auðlindum þjóðarinnar lítið sem ekkert í skatt af ofurgróðanum. Ekki er króna tekin af þeim í skerðingar eða keðjuverkandi skerðingar af milljarðagróðanum. Flokkur fólksins segir: Fólkið fyrst og útrýmum strax fátækt á Íslandi.

Kæru landsmenn. Í fjármálaáætlun ríkisstjórnar til næstu fjögurra ára kemur skýrt fram að kjör þeirra sem verst hafa það í almannatryggingakerfinu munu versna enn meira ef sama ríkisstjórn verður áfram við völd eftir kosningar. Eina hækkunin til þeirra sem reyna af fremsta megni að tóra í kerfinu er vísitöluhækkun. Engar leiðréttingar eru á kjaragliðnun undanfarinna ára, kjaragliðnun sem er nú orðin 50%. Það er sú hækkun sem þeir sem eru á almannatryggingum eiga inni. Kjaragliðnunin mun aukast enn meira í boði ríkisstjórnar næstu fjögur árin. Þá er ótalin sú skattahækkun sem orðið hefur með því að persónuafsláttur hefur ekki fylgt launaþróun í landinu. Það, ásamt auknum keðjuverkandi skerðingum, veldur því að þeir verst settu í okkar ríka samfélagi þurfa enn þá að lifa á um 200.000 kr. á mánuði eftir skatta og skerðingar.

Ríkisstjórnin setti aftur krónu á móti krónu skerðingar á hóp eldra fólks sem hefur það verst í almannatryggingakerfinu, eldra fólk sem er aðeins með 90% af lágmarksellilífeyri. Það er stórfurðulegt að ríkisstjórnin sé tilbúin að borga milljónir fyrir að taka þetta skerðingaróféti, krónu á móti krónu, aftur upp. Hvers vegna? Það er svo furðulegt fjárhagslegt ofbeldi að þessi hungurlús þeirra sé skattlögð og það meira en arður auðmanna sem verða sífellt ríkari á meðan sárafátækir verða fátækari og eiga enn síður fyrir mat eða lyfjum.

Hæstv. forsætisráðherra sagði fyrir síðustu kosningar að nú væri tími þeirra verst settu í okkar samfélagi kominn, þessir hópar gætu ekki beðið lengur. En þeir bíða enn. Í staðinn hafa komið auknar keðjuverkandi skerðingar á skerðingar ofan. Hvers vegna er arður auðmanna ekki skattaður og skertur um 75–100% eins og lífeyrislaun almannatrygginga og lífeyrissjóða? Hvers vegna eru 350.000 kr. á mánuði ekki skatta- og skerðingarlaus lágmarksframfærsla? Hvers vegna er 109.000 króna frítekjumark tekna á mánuði ekki uppfært í um 250.000 kr.? Hvers vegna er frítekjumark lífeyrissjóðslauna ekki að lágmarki 100.000 kr. á mánuði í stað 25.000 kr.?

Virðulegi forseti. Góðir landsmenn. Ríkisstjórn eftir ríkisstjórn hefur byggt upp þetta ömurlega almannatryggingakerfi og viðhaldið því með auknum skerðingum, sett inn þúsund krónur í keðjuverkandi skerðingarkerfið sem renna í gegnum vasa öryrkja og eldra fólks og beint aftur í ríkissjóð. Það eina sem er eftir eru smáaurar í vasa þeirra verst settu ef það fólk er svo heppið. 5 milljarðar á ári í auknar skerðingar og því 20 milljarðar í auknar skerðingar á fjórum árum í boði ríkisstjórnar.

Virðulegur forseti. Kæru landsmenn. Hvar eigum við að fá fjármagnið? spyr hæstv. fjármálaráðherra þegar málefni verst setta hóps aldraðs fólks og öryrkja ber á góma. Hann spyr ekki hvar við eigum að fá fjármagnið þegar einkareknir fjölmiðlar, minkar eða önnur gæluverkefni fá hundruð milljóna eða milljarða í boði ríkissjóðs. Heilbrigðiskerfið er á ystu nöf, biðlistar lengjast, mönnunarvandi og kulnun í starfi er að verða stór vandi og ekki var samið við stóran hóp heilbrigðisstarfsfólks. Hjúkrunarheimilin eru einnig komin á ystu nöf.

Börn eiga skýlausan rétt á nauðsynlegri þjónustu og það er fáránlegt að um 1.000 börn séu á biðlista eftir þjónustu. Geðheilsa barna og ungmenna á að vera forgangsmál. Börn í sárafátækt, eldri borgarar í sárafátækt, atvinnulausir, láglaunafólk í sárafátækt — er ekki kominn tími á sanngirni og réttlæti handa öllum, að allir séu jafnir fyrir lögum og njóti mannréttinda og þá ekki síst að börnum sé tryggð sú vernd og umönnun sem velferð þeirra krefst? Fólkið fyrst, svo allt hitt, segir Flokkur fólksins. — Góðir landsmenn. Eigið góðar stundir.