almennar stjórnmálaumræður (eldhúsdagsumræður).
Hæstv. forseti. Góðir Íslendingar. Við erum fyrst frjáls þegar við erum laus undan því oki að fylgja því sem vinsælast er að segja hverju sinni og þegar við hættum að reyna að gera öllum sífellt til geðs. Við erum frjáls þegar við erum trú eigin sannfæringu og höfum hugrekki til að fylgja henni eftir. Við erum frjáls þegar við tökum ábyrgð á eigin örlögum og vali. Og við erum frjáls þegar við finnum að okkur er treyst og við höfum gott svigrúm til orða og athafna. Þetta er eftirsóknarvert.
Við megum til dæmis aldrei verða svo háð hinu opinbera að við verðum fórnarlömb kerfanna. Kerfin sem reisa tálma og hindranir sem svipta fólk valfrelsinu og eru rekin af stjórnlyndum embættismönnum. Það er ekki eftirsóknarvert. Of oft er rætt um að hið opinbera þurfi að skipta sér af málum fólks án þess að brýn nauðsyn sé til. Einhverjir geta freistast til að halda að hinar opinberu bjargir séu ókeypis, eins og gjafir af himnum ofan, og að þeim fylgi engar skuldbindingar. Það er rangt. Allt sem kemur frá hinu opinbera rennur úr sameiginlegum sjóðum og getur skuldbundið okkur um langa hríð í margvíslegum skilningi. Þess vegna eigum við að hafa sem minnst ríkisafskipti og lágmarka reglugerðafargan og heftandi stjórnsýslu.
Við eigum að treysta fólkinu en ekki vantreysta því. Þar sem fólkinu er treyst blómstra samfélögin. Þar sem ríkisafskipti eru mikil íþyngja þau þjóðlífinu. Ríkisvaldið getur aftur á móti stutt vel við samfélögin, bæði með því að gefa svigrúm og súrefni, lækka álögur, byggja upp innviði en líka með því að grípa þau sem höllum fæti standa. Það gerðum við á síðasta ári. Ríkisstjórnin studdi við fólkið og atvinnulífið andspænis mikilli vá og það er að skila sér.
Í eldhúsdagsræðu minni fyrir ári hafði ég þungar áhyggjur af stigvaxandi atvinnuleysi, ekki síst í minni heimasveit, Suðurnesjunum. Nú berast fregnir af því að fyrirtækin séu farin að endurráða starfsfólkið sitt, jafnvel nokkur hundruð manns í senn og það er fagnaðarefni. Til slíkra endurráðninga hefði ekki komið ef við hefðum ekki stutt við atvinnulífið þegar þörfin var mest. Þá væru þessi fyrirtæki ekki til staðar og þar af leiðandi engin störf fyrir fólkið. Velferð beggja er þannig sameiginleg og grunnur að kröftugri viðspyrnu samfélagsins alls.
Valfrelsið og ábyrgðin snýr líka að fjölskyldunni. Við eigum ekki að setja hér lög sem takmarka valfrelsi hennar, eins og til dæmis var reynt þegar taka átti allt svigrúm af foreldrum til að skipta með sér fæðingarorlofi. Gildir einu þótt það sé gert í góðum tilgangi eins og að auka jafnrétti. Nútímafólk er jafnréttissinnað og treystandi til að tryggja það sjálft. Annað dæmi um inngrip hins opinbera í líf fjölskyldna er þegar stofnanir þykjast vita betur um velferð barna. Foreldrar þekkja best hvað er börnum þeirra er fyrir bestu. Fjölskyldur eiga ekki að þurfa að dúsa lengi á biðlistum eftir greiningu hins opinbera á vanda barnsins og viðeigandi þjónustu. Sama gildir þegar barn fer í skólann á morgnana. Þá er það áfram á ábyrgð foreldra og skólarnir eiga að fræða barnið en ekki að taka yfir uppeldi þess. Við þurfum að gæta að þessu sérstaklega því að mörgum finnst þægilegt að útvista ábyrgðinni til opinberra stofnana en þær vita ekki alltaf best.
Góðir Íslendingar. Við göngum til móts við sumarið og getum litið framtíðina bjartari augum en við gerðum fyrir ári. Við stóðum saman þegar á reyndi og það er trú mín að á næstu misserum skapist hér fjölmörg tækifæri til nýsköpunar og framþróunar, einmitt vegna þess. — Góðar stundir.