stjórnarskrárbreytingar.
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur fyrir að taka upp þessi stóru mál. Ég mælti fyrir frumvarpinu í febrúar og ég vil taka það fram að mér fannst 1. umr. um frumvarp mitt vera góð umræða. Mér fannst hún málefnaleg. Ég dró það út úr þeirri umræðu að það kynni að vera samhljómur um ýmsar þær breytingar sem lagðar eru til í frumvarpinu þó að það sé augljóslega ekki samhljómur um allar breytingar. Ég er auðvitað ekki sammála hv. þingmanni og einkunn hennar um auðlindaákvæðið, sem ég tel einmitt vera skýrt og snúast um grundvallarreglurnar sem við viljum setja um auðlindanýtingu í samfélaginu. Mér finnst þetta vera gott ákvæði. Ég átta mig hins vegar á því að það er ekki samstaða um það. Ég veit að kallað hefur verið eftir því í hv. stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd hvort unnt sé að ná saman um einhver ákvæði, hvort það séu einhver ákvæði sem hv. þingmenn sem þar sitja telja flöt á að sameinast um, þó að það sé ekki allt. Þá er það auðvitað hægur vandi fyrir nefndina að afgreiða hluta málsins í samstöðu og skilja önnur mál eftir til frekari úrvinnslu síðar meir. Ég hef hvatt til þess ef slíkur vilji er fyrir hendi.
Mig langar hins vegar að segja það hér, í ljósi þess að stjórnarskrá lýðveldisins gerir ráð fyrir því að þegar stjórnarskrárbreytingar hafa verið afgreiddar beri að rjúfa þing og boða til kosninga, þannig er það ákvæði sem er í stjórnarskránni, að ég held að það sé ekki gott ákvæði. Ég held að sú pressa sem skapast hér á afgreiðslu stjórnarskrárbreytinga í aðdraganda kosninga geri fólki mjög erfitt fyrir að ná saman um mál sem jafnvel væri hægt að ná saman um undir öðrum kringumstæðum. Þannig að ég ætla bara að fá að lýsa þeirri skoðun minni að ég tel, með þennan margbreytilega þingheim og fjölda flokka, að þetta verkefni muni reynast okkur erfitt ef við viljum (Forseti hringir.) reyna að ná fram breytingum í samstöðu, sem ég held að sé vilji langflestra hér inni.