151. löggjafarþing — 109. fundur,  8. júní 2021.

stjórnarskrárbreytingar.

[13:17]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

Herra forseti. Það stendur ekki á mér í þessu máli og ég hef sagt það margítrekað að ég telji mjög mikilvægt að ná fram einhverjum breytingum á stjórnarskrá og ég tel margar þeirra breytinga sem eru lagðar þarna til þess eðlis að um þær ætti að geta verið samstaða. Auðvitað er dapurlegt að stjórnarskrá Íslands sé t.d. þögul með öllu um umhverfis- og náttúruvernd, ein stjórnarskráa á Norðurlöndum. Ef stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd næði saman um að afgreiða slíkt ákvæði þá myndi ég vera fullkomlega til í þá umræðu sem og þær breytingar sem hv. þingmaður vísar hér til og þær þurfa ekki allar að koma til atkvæða ef fólk metur þær ekki allar skynsamlegar. En þó hefur mér heyrst að það geti verið töluverður samhljómur um ýmsar þær breytingar sem eru lagðar til í forsetakaflanum, ekki allar, gott og vel. Ég hef hvatt framsögumann málsins og formann nefndarinnar til að vinna að því einmitt að kanna það algerlega til botns hvort ekki sé unnt að ná samstöðu um einhver ákvæði þannig að þetta verkefni (Forseti hringir.) hreyfist og þannig að stjórnarskráin verði t.d. ekki þögul áfram um umhverfis- og náttúruvernd sem er eitt stærsta mál samtímans.