skerðingar í almannatryggingakerfinu.
Virðulegi forseti. Í fyrra svari beindi ég sjónum mínum að ellilífeyrisþegum en hv. þingmaður er hér að tala um alla þá sem eru á bótum almannatrygginga. Mér finnst hann gera fulllítið úr því hversu ofboðslegt verkefni hann er að setja á dagskrá. Hv. þingmaður er að tala um kerfi sem kostar okkur Íslendinga á hverju ári 160–180 milljarða. Það eru tölurnar sem við erum að tala um. Í augnablikinu er ríkissjóður rekinn með 300 milljarða halla og hv. þingmaður og flokkur hans talar um tugmilljarða kostnað í breytingar á þessu kerfi eins og það sé bara sjálfsagt mál. Við eigum bara að reiða þetta fram, ekki bara í einskiptisaðgerð heldur á hverju ári um alla framtíð. Hver á að borga, hv. þingmaður? Hver á að borga? Hv. þingmaður hefur talað fyrir því að við tökum tugmilljarða lán á hverju einasta ári um alla framtíð til þess að borga okkur sjálfum vegna þess að það muni á endanum koma svo vel út. (Forseti hringir.) Við erum með gríðarlega öflugt félagslegt öryggisnet. Við getum gert betur. Það er minn málstaður hér. En við verðum að hafa efni á því, hv. þingmaður.