hálendisþjóðgarður.
Herra forseti. Ég verð nú að segja að mér fannst þessi ræða hálfkúnstug hjá fyrrum félaga mínum úr Vinstrihreyfingunni – grænu framboði og umhverfisverndarhreyfingunni. Hv. þingmaður þekkir þetta frumvarp vonandi vel. Ég veit það ekki nákvæmlega. En eins og ég fór yfir áðan er það lagt fram um áramót og um það berast á annað hundrað umsagnir. Eftir því sem mér er sagt, og nú sit ég ekki í nefndinni, ekki frekar en hv. þingmaður, þá hefur ekki tekist að ljúka gestakomum í málinu. Ég hef oft sagt það og ítreka það enn og aftur — af því að mér er annt um málið, þetta er mál sem mér finnst ótrúlega mikilvægt, ekki fyrir VG heldur fyrir Ísland, fyrir náttúruvernd á Íslandi og fyrir náttúruvernd í heiminum af því að hér erum við með ein stærstu ósnortnu víðerni Evrópu, algerlega einstakt svæði í Evrópu, ekki bara á Íslandi — að það er svo mikilvægt að vanda vel til verka og tryggja að við tökum vel utan um þau álitamál sem upp kunna að koma þegar um er að ræða jafn mikilvægt svæði.
Hv. þingmanni, veit ég, verður oft tíðrætt um vönduð vinnubrögð og ég þykist þá vita að hún sé sammála mér um að við eigum að vanda okkur í þessu verki. Kom málið of seint fram? Það kann að vera. Við erum búin að vera að eiga við heimsfaraldur hér á Alþingi og ég veit að umhverfis- og auðlindaráðherra frestaði þessu máli síðasta vetur vegna þess að þingið var hreinlega í öðrum verkum. Það gerði hann af því að það voru önnur risastór verkefni sem ríkisstjórnin var að glíma við. Ég kalla það ekki ósigur. Ég kalla það ekki gríðarlega eftirgjöf, eins og hv. þingmaður kýs að kalla það. En mig grunar nú að þessi stóryrði hv. þingmanns eigi líka rætur að rekja til fyrrum veru hennar í okkar hreyfingu. Og ég vil segja það að ég held að í þessu máli ættum við umhverfisverndarsinnar fremur að leggja kraftana saman en að koma hér upp með gífuryrði.