hálendisþjóðgarður.
Herra forseti. Nú verð ég að játa að mér þykir svar hæstv. forsætisráðherra vera vonbrigði. Hún veit mætavel að stuðningur við þetta mál er alger og sannur og heill af minni hálfu, hún ætti að vita það betur en nokkur annar. En mér finnst satt að segja ódýrt að kenna þinginu um að málið hafi ekki unnist nægilega vel í þinginu af hálfu hv. umhverfis- og samgöngunefndar. Málið kom seint fram en hafði þrátt fyrir það verið í gríðarlega miklum undirbúningi og samtölum víða um land þannig að undirbúningur málsins ætti að vera nægilegur. Þess vegna skulum við bara játa það hér og nú að það er ekki undirbúningsleysi eða vinnubrögðum hv. umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis um að kenna að málið næst ekki í gegn á þessu þingi heldur ósamstöðu stjórnarflokkanna (Forseti hringir.) og andstöðu Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins við málið. Það skulum við viðurkenna. (Forseti hringir.) Því ætla ég að spyrja hæstv. forsætisráðherra: Telur hún (Forseti hringir.) að ef sömu flokkar sitja hér í ríkisstjórn á næsta kjörtímabili muni þetta mál nást í gegn, (Forseti hringir.) á því kjörtímabili, eftir fjögurra ára depurð (Forseti hringir.) í meðhöndlun á þessu risastóra máli?