hálendisþjóðgarður.
Herra forseti. Hv. þingmaður talar um að svör mín séu ódýr. Þar þykir mér nú hv. þingmaður kasta steinum úr glerhúsi, sem talar hér um gríðarlegan ósigur, gríðarlega eftirgjöf. Þetta mál er risastórt mál. Ég veit að það mun verða stofnaður þjóðgarður á hálendinu á Íslandi og ég veit það af því að það er hin augljósa rétta stefna að taka, ekki bara fyrir náttúruvernd á Íslandi heldur fyrir Ísland í heild sinni. Ef það þarf að gefa þessu máli meiri tíma til að vanda sig betur — mér skilst að gestakomum sé ekki lokið í málinu eins og ég sagði áðan — þá snúast þau orð ekki um að verið sé að kenna þinginu um, bara algerlega ekki, heldur lít ég svo á að þingið eigi að vinna sína vinnu og sé að vinna sína vinnu og geri enga athugasemd við það. Að sjálfsögðu hefði ég kosið að málið væri lengra komið hjá nefndinni. Ég sit ekki við borðið þar og átta mig ekki nákvæmlega á því hvernig það hefur gengið. (Forseti hringir.) En það breytir því ekki að þetta er risastórt mál sem verður á dagskrá hjá Vinstrihreyfingunni – grænu framboði áfram, hvað sem verður um það hér og nú, af því að þetta er gott mál fyrir þjóðina. (Forseti hringir.) Þetta er gott mál fyrir Ísland og þetta er gott mál fyrir náttúruvernd í heiminum. (Forseti hringir.) Um það ættum við að sameinast sem viljum þessu máli vel.