151. löggjafarþing — 109. fundur,  8. júní 2021.

um fundarstjórn.

[13:49]
Horfa

Anna Kolbrún Árnadóttir (M):

Hæstv. forseti. Mig langar að óska eftir liðsinni forseta vegna þess að nú hef ég séð og heyrt af nokkrum hópi kvenna sem hefur kvartað til umboðsmanns Alþingis vegna þess að þær skortir svör um hvernig farið var með leghálssýni þeirra. Þetta er stóralvarlegt mál og við bíðum hér enn eftir skýrslu um flutning á leghálssýnatökunni. Við áttum að fá svör í síðustu viku sem áttu auðvitað að vera löngu komin fyrir þann tíma. En það er fyrst og fremst þess vegna sem ég kem hér upp, til þess að óska liðsinnis forseta í þessari grafalvarlegu stöðu.