151. löggjafarþing — 109. fundur,  8. júní 2021.

fjöleignarhús.

748. mál
[14:20]
Horfa

Ólafur Þór Gunnarsson (Vg) (um atkvæðagreiðslu):

Herra forseti. Ég vil taka undir með þeim þingmönnum sem nefnt hafa álitaefni sem reifuð eru í nefndaráliti með frumvarpinu þar sem því er beint til ráðherra að þessi mál verði skoðuð og ígrunduð í ráðuneytinu og metið hvort ástæða sé til að gera þessar breytingar. Þær voru hins vegar ekki hluti af því frumvarpi sem hér er og eru að nokkru leyti ekki alveg tengdar. Hins vegar vil ég hafna því sem hér hefur komið fram, að nefndin hafi á einhvern hátt unnið slælega að þessu máli eða ekki gefið sér þann tíma sem þurfti. Því er ég algjörlega ósammála og vil nota tækifærið til að þakka nefndinni og hv. framsögumanni Höllu Signýju Kristjánsdóttur fyrir vinnuna við þetta mál.