151. löggjafarþing — 109. fundur,  8. júní 2021.

atvinnuleysistryggingar og greiðslur til íþróttafélaga vegna launakostnaðar og verktakagreiðslna á tímum kórónuveirufaraldurs.

775. mál
[14:25]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M):

Herra forseti. Við ræðum hérna breytingar á lögum um atvinnuleysistryggingar og lögum um greiðslur til íþróttafélaga vegna launakostnaðar og verktakagreiðslna á tímum kórónuveirufaraldurs. Ég ætlaði í minni ræðu aðeins að fjalla um greiðslur til íþróttafélaga fyrst og fremst. Þarna er í raun og veru verið að framlengja það tímabil sem m.a. íþróttafélög geta sótt um greiðslur til Vinnumálastofnunar á grundvelli þeirra laga sem við fjöllum hér um. Íþróttahreyfingin fagnar þessu eins og sést á umsögnum, t.d. Knattspyrnusambands Íslands þar sem þeir taka undir þau sjónarmið að þessar breytingar komi til með að milda efnahagsleg áhrif á íþróttastarf komi til þess að herða þurfi sóttvarnaráðstafanir að nýju. Í umsögn Ungmennafélags Íslands kveður við sama tón þar sem ungmennafélagið fagnar því að lagt sé til að framlengja þessar greiðslur. Þar segir síðan, með leyfi forseta:

„Þetta eru nauðsynlegar aðgerðir því þótt bólusetningar séu hafnar eru horfurnar enn óljósar. Brugðið getur til beggja vona í þeim efnum sem öðrum og því betra að hafa bæði belti og axlabönd“ — eins og þeir orða það — „til að styðja við rekstur íþróttafélaga, í það minnsta að gera allt sem mögulegt er til að forða þeim frá því að verða fyrir rekstrarlegum skakkaföllum af völdum áhrifa kórónuveirufaraldursins.“

Síðan fjalla þeir um mikilvægi íþróttastarfs. Það er kannski það sem ég ætlaði að fjalla um í minni ræðu allra helst, þ.e. mikilvægi íþróttastarfs og mikilvægi jafnræðis meðal þeirra félagasamtaka sem sinna tómstundum, eins og íþróttir eru, á breiðum grundvelli sem eru í raun, herra forseti, fleiri aðilar heldur en bara íþróttafélög. Við höfum einnig umsögn frá félagasamtökum KFUM og KFUK þar sem þau benda á að t.d. þeirra samtök séu þarna skilin eftir úti í kuldanum, jafnvel þótt þau séu raunverulega að sinna forvörnum eins og íþróttahreyfingin og íþróttafélögin gera líka. Ég ætla að grípa aðeins niður í þeirra umsögn sem er dagsett 16. maí sl. Þeir segja fyrst, með leyfi forseta:

„Stjórnvöld á Íslandi hafa ríkan skilning á hve mikilvægt íþrótta- og æskulýðsstarf er fyrir uppvöxt og þroska barna og unglinga.“ — Og síðan: „Það er mikilvægt að á Íslandi sé í boði fjölbreytt og vandað íþrótta- og æskulýðsstarf. Íþróttirnar skipa þar vissulega stóran sess, en við verðum að muna að það eru ekki öll börn sem finna sig í íþróttunum. Fjölmörg þeirra eiga meiri samleið með öðru skipulögðu æskulýðsstarfi.“

Og hvaða starf skyldi það vera, herra forseti? Það eru nefnilega ýmisleg önnur félagasamtök sem sinna ungmennum á Íslandi heldur en bara íþróttafélög. Það er alveg hárrétt sem segir að þó að íþróttafélögin séu öflug, stór og fjölmenn og sinni fjölbreyttu starfi og mjög fjölmennum iðkendahópum er líka til önnur starfsemi eins og umsagnaraðilinn sjálfur, KFUM, og einnig fleiri aðilar. Ég get nefnt t.d. skátastarf og eflaust má tína til fleiri aðila. Þegar þessi lög voru sett í upphafi þá var bent á þetta en þeim aðilum var sleppt. Núna þegar verið er að breyta þessu og framlengja þetta úrræði, að þessi samtök geti sótt stuðning til Vinnumálastofnunar við launagreiðslur til starfsmanna eða verktaka, sér nefndin ekki, ekki heldur núna, herra forseti, sér fært að færa það inn í lögin að taka slík samtök einnig inn, sem er svo einfalt, sem er í raun og veru mjög einfalt, og kemur fram í umsögn samtakanna KFUM þar sem þeir benda á að það sé einfalt að setja þetta inn í 3. gr. laganna og eru meira að segja í sinni umsögn með tillögu um hvernig það yrði orðað í 3. gr. laganna, að hún hljóði svo, með leyfi forseta:

„Íþróttafélag: Lögaðili innan vébanda Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands, Bandalags íslenskra skáta, KFUM og KFUK á Íslandi og annarra samtaka sem hafa í nafni íþrótta- og æskulýðsstarfs þjónustusamning við mennta- og menningarmálaráðuneytið, þ.m.t. einstakar deildir sem starfa á vegum lögaðilans.“

Þetta sé skilgreiningaratriði í lögunum en því verði breytt og hægt að skjóta því inn í lögin núna til þess að styðja einnig starf þessara aðila. Sérstaklega benda þeir á að upplagt sé að gera þetta núna vegna þess að þetta úrræði og þessi lagasetning er tímabundin. Þetta er tímabundin löggjöf sem þarna er um að ræða og því einfalt skjóta þessu inn. Það er ekki svo að þarna sé verið að opna flóðgáttir fyrir hina og þessa aðila heldur er þarna um að ræða að bæta þeim inn í sem svo nauðsynlegt er að gera til að allir geti notið þessa ríkisstuðnings en ekki bara íþróttasamtökin þótt þau séu mikilvæg.

Þeir benda í umsögn sinni á að velferðarnefnd Alþingis hafi, með leyfi forseta:

„… einstakt tækifæri til að leiðrétta þau mistök sem gerð voru á liðnum vetri við setningu laga nr. 155/2020. Mistök sem sendu mjög slæm skilaboð út í samfélagið, mistök sem eru engum til sóma.“

Við ætlum, herra forseti, að endurtaka: Velferðarnefnd Alþingis ætlar að endurtaka þessi mistök sem er margbúið að benda á. Nefndin segir í áliti sínu, með leyfi forseta:

„Meiri hlutinn telur að svo stöddu ekki unnt að leggjast í svo umfangsmiklar breytingar á frumvarpinu. Hann bendir á að stjórnvöld hafi um þessar mundir aftur komið með úrræði til að tryggja atvinnutækifæri fyrir námsmenn um sumar. Þá sé framlenging á úrræðinu fyrir íþróttafélög lögð til verði þeim aftur gert að fella tímabundið niður starfsemi að hluta eða öllu leyti vegna opinberra sóttvarnaráðstafana.

Meiri hlutinn fagnar þeim framlengingum sem eru lagðar til samkvæmt 2. gr. um tekjutengdar atvinnuleysisbætur og 4. og 5. gr. um greiðslur vegna launakostnaðar og verktakagreiðslur íþróttafélaganna, enda er enn verið að glíma við efnahagslegar afleiðingar kórónuveirufaraldursins.“

Síðan segir:

„Í umsögnum um málið komu fram ábendingar um að úrræðin sem frumvarpið hefur að geyma ættu að taka til fleiri aðila, annars vegar þyrfti að tryggja námsmönnum rétt til atvinnuleysisbóta og hins vegar að fella æskulýðsstarf undir lög um greiðslur til íþróttafélaga vegna launakostnaðar og verktakagreiðslna á tímum kórónuveirufaraldurs.“

Meiri hlutinn telur að svo stöddu ekki unnt að leggjast í svo umfangsmiklar breytingar á frumvarpinu. Þetta eru ekki umfangsmiklar breytingar, herra forseti. Þetta er mjög einföld breyting. Bara er gert ráð fyrir því að undir þetta eigi að heyra starfsemi sem hafi samning við mennta- og menningarmálaráðuneytið eins og íþróttafélögin og sú æskulýðsstarfsemi sem ég hef nefnt hér, skátarnir og KFUM.

Ég var lengi þátttakandi í íþróttastarfi og uppbyggingu íþróttastarfs, var m.a. formaður íþróttafélags og íþróttasambands, sérsambands, og varð þar áskynja þess hversu mikil áhrif slíkt starf getur haft á börn og ungmenni. Ég var einnig starfandi lengi í skákfélagi. Þetta hefur gífurleg jákvæð áhrif á krakka og unglinga og minnkar líkur á að þessir krakkar leiðist út í óreglu, afbrot eða fíkniefnaneyslu, minnkar líkurnar á því stórlega. Það er alls ekki svo, herra forseti, að það séu bara íþróttafélögin sem starfa að þessu markmiði. Það eru fjölmörg önnur félög, t.d. skátarnir. Þó að ég hafi aldrei gengið í sveitir skátanna eru þetta gífurlega umfangsmikil og stór samtök, skátafélögin um allt land. Hérna í Reykjavík t.d. er í Árbænum skátafélagið Árbúarnir, í Bústaðahverfinu eru það Garðbúarnir, í Grafarholtinu og Grafarvoginum er það skátafélagið Hamar og meira að segja í miðbæ Reykjavíkur er skátafélag rekið sem heitir skátafélagið Landnemar. Í Seljahverfi er skátafélagið Segull, í Vogahverfi og Laugardalnum er það skátafélagið Skjöldungur, í Vesturbænum skátafélagið Ægisbúar. Ekki má gleyma Breiðholtinu vegna þess að í Breiðholtinu er það skátafélagið Hafernir. Þetta eru falleg íslensk nöfn sem þessi skátafélög velja sér. Úti á landi eru öflug skátafélög eins og t.d. í Vestmannaeyjum þar sem ég bjó lengi, þar er það skátafélagið Faxi sem hefur mikla — og veit ég til þess — mikla starfsemi og fjölmargir krakkar og ungmenni taka þátt í því starfi sem er öflugt. Í Kópavoginum er skátafélagið Kópar og á Ísafirði eru það Einherjar/Valkyrjan. Á Sauðárkróki er það skátafélagið Eilífsbúar og á Blönduósi í Húnavatnssýslunni er það skátafélagið Bjarmi, á Selfossi er það skátafélagið Fossbúar, í Þorlákshöfn er það skátafélagið Melur, á Dalvík skátafélagið Landvættir og í Mosfellsbænum Mosverjar auðvitað. Síðan eru það skátafélög sem eru kennd við sinn heimabæ eins og skátafélag Akraness og skátafélag Borgarness. Meira að segja í sveitinni er það skátafélag Sólheima í Grímsnesinu og í Hveragerði skátafélagið Strókur, skátafélagið Vífill í Garðabæ, Víkingur á Húsavík, Örninn á Grundarfirði, Svanirnir á Álftanesi. Svona mætti lengi telja og er ég bara búinn að nefna örfá skátafélög vegna þess að þau eru víða. Í Reykjanesbæ eru það Heiðabúar, í Hafnarfirði Hraunbúar og ekki má gleyma Akureyringum vegna þess að skátafélagið Klakkur starfar á Akureyri.

Ég ætla að ljúka þessari upptalningu. Á þessu sést, herra forseti, að skátarnir reka umfangsmikla starfsemi um allt land og að skilja þennan stóra hóp út undan og taka bara íþróttafélögin sem eru auðvitað langstærst með einfaldri breytingu á þessum lögum finnst mér algjör óhæfa. Velferðarnefnd á að sjá sóma sinn í því að taka kristilegt félag ungra manna og kristilegt félag ungra kvenna, KFUM og K, með sér inn í breytingartillögur áður en við afgreiðum þetta frumvarp. Mér finnst það einsýnt, herra forseti, enda er um tímabundna ráðstöfun að ræða og hún gildir bara, ef ég man rétt, fram í lok febrúar á næsta ári og er framlengd þangað. Þannig að nú er einstakt tækifæri til að leiðrétta þetta, herra forseti, og veita þessum öflugu samtökum þann stuðning sem þau þurfa. Sum þessara félaga hafa starfsmenn, ekki öll. Sum eru kannski að kaupa verktakavinnu og gætu þá sótt um stuðning vegna þess að í eðli sínu er starfsemi þeirra mjög svipuð og íþróttafélaganna. Það er verið að leiðbeina börnum, kenna þeim einhverja færni, andlega eða líkamlega, í skátunum alveg eins og í KFUM og í íþróttunum. Ég tel það einsýnt að við förum í þessar breytingar og myndi styðja það heils hugar ef það kæmi hér fram.

Tíma mínum er nú að ljúka. Ég held að atvinnuástandið sé nú skánandi en eins og umsagnirnar bera með sér þá erum við ekki að fullu komin í gegnum þetta. Það er óvíst hvernig þetta verður. Það er óvíst hvernig þetta kemur til með að verða á næstu vikum og mánuðum þannig að frumvarpið er nauðsynlegt.