atvinnuleysistryggingar og greiðslur til íþróttafélaga vegna launakostnaðar og verktakagreiðslna á tímum kórónuveirufaraldurs.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni svarið og tek kannski boltann áfram með atriði sem hv. þingmaður nefndi varðandi tímarammann eða töfina, ef svo má segja, sem varð á því að aðgerðir sem þessar yrðu lagðar fram. Ég sé hér á minni eigin ræðu frá þessari umræðu að hún er frá 3. desember 2020 og þá eru liðnir tíu, ellefu mánuðir frá því að faraldurinn brestur á. Núna liggur þetta mál fyrir, þessi framlenging, og gerir ráð fyrir fjögurra mánaða framlengingu á þessum úrræðum frá þeim endapunkti sem áður var áætlaður. Hvernig metur hv. þingmaður það, er þetta skynsamlegur tími að hafa sem viðmið hvað endapunkt þessarar lausnar varðar eða telur hv. þingmaður að það væri skynsamlegt að trappa þetta niður með einhverjum hætti? Eða eru íþróttafélögin að mati hv. þingmanns komin á þann stað að almennur rekstur þeirra sé með sambærilegum hætti og áður en heimsfaraldur brast á? Miðað við þessa framlengingu er auðvitað verið að segja að á þessum tímapunkti, nýja lokapunkti, þá eigum við að vera komin á þann stað með starfsumhverfi íþróttahreyfingarinnar hvað tekjuöflun og útgjöld varðar að það sé eins og ekkert hafi komið upp á. Ég er hræddur um að hlutir sem snúa að almennri fjármögnun íþróttafélaga og styrkir og þess háttar verði ekki komnir á þann stað sem áður var og við gætum þurft að hafa einhvern aðlögunarfasa þarna en ekki svona lokapunkt (Forseti hringir.) þar sem farið er úr fullum stuðningi í 0 yfir ein mánaðamót.