151. löggjafarþing — 109. fundur,  8. júní 2021.

atvinnuleysistryggingar og greiðslur til íþróttafélaga vegna launakostnaðar og verktakagreiðslna á tímum kórónuveirufaraldurs.

775. mál
[15:41]
Horfa

Gunnar Bragi Sveinsson (M):

Hæstv. forseti. Það mál sem við ræðum er að langflestu leyti gott mál. Það er verið að framlengja ákveðnar aðgerðir, eins og fram hefur komið hér, sem gripið var til vegna faraldursins sem skall á okkur og eru að sjálfsögðu til góða fyrir þá sem lögin ná til. Einhverjir hefðu reyndar viljað að þær næðu til fleiri og mun ég aðeins koma inn á það.

Mig langar í upphafi að taka undir það sem fram hefur komið fyrr í ræðum hversu mikilvægar íþróttir og allt í kringum þær eru fyrir okkur öll, ekki bara börn og unglinga, sem eru kannski hvað duglegust í íþróttum, heldur okkur öll. Auðvitað mættu sum okkar vera aðeins duglegri við að iðka íþróttir en það er nú bara eins og það er. Þá hafa margir beina og óbeina atvinnu af íþróttastarfsemi og skapa íþróttir mikla veltu í samfélagi okkar og skipta þar af leiðandi töluvert miklu máli fyrir utan hinn góða heilsufarslega þátt sem þær skila.

Það hefur komið fram hér í umræðunni um málið að það eru a.m.k. tveir hópar sem telja sig hafa orðið út undan, nefni ég stúdenta og hin svokölluðu æskulýðsfélög eða æskulýðshreyfinguna og þá sem þar falla undir. Skátarnir hafa einnig verið nefndir og má nefna fleiri. Tek ég undir að æskilegt hefði verið að aðeins meiri metnaður hefði verið lagður í að ná til þessara hópa og bæta þeim við því að starfsemi þeirra er ekki síður mikilvæg þótt af annarri sort sé, ef ég má orða það með þeim hætti.

Auðvitað eru margir orðnir hundleiðir á því að velta þessum faraldri fyrir sér og hvernig hann hefur farið með okkur. Við höfum alls konar skoðanir á því hvernig hefur til tekist og hvað hefði mátt gera öðruvísi og þess háttar. Í grunninn hefur sérfræðingum okkar tekist bara býsna vel til. Við erum ekkert endilega alltaf sammála eða sátt við það hvernig hlutunum er raðað upp eða hvernig þeir eru gerðir og fram settir, en við Íslendingar erum örfá í býsna stóru landi og því hefur árangurinn af vinnu sérfræðinganna verið býsna góður. Það er samt mikilvægt fyrir okkur, og ég kem aðeins að því síðar, að fara að horfa fram á við, hugsa um hvernig við ætlum að svara spurningunum sem bíða okkar.

Virðulegi forseti. Mig langar í upphafi að nefna að ég held að það hefði verið skynsamlegra fyrir þá sem voru að breyta þessu frumvarpi, þ.e. nefndina, að leita frekari leiða og leggja sig enn þá meira fram við að finna lausnir sem gætu náð til þeirra sem telja sig vera út undan. Ég geri mér samt grein fyrir því að nefndin lagði sig í líma við að gera þetta mál sem best úr garði eftir að það kom til hennar. Það er vitanlega svolítið sérstakt, eins og bent er á í umsögnum, að gerður sé munur á aðilum sem eru hlið við hlið, báðir að sinna æskulýðnum, unga fólkinu, annar með íþróttir, hinn með einhvers konar annað starf eins og menningarstarf eða uppeldis- og menntunarstarf, eins og skátarnir.

Í heiminum í dag er svo mikil framþróun í öllu sem telst vera íþróttir og/eða áhugamál og menning að við náum varla að fylgja því eftir. Það er áhugavert að sjá þann mikla vöxt sem verið hefur undanfarin ár í rafíþróttum á Íslandi, sá heimur stækkar gríðarlega hratt og eftir því sem maður hefur náð að lesa sér til þá virðist vera meira horft á og fylgst með rafíþróttum en flestum öðrum íþróttum þegar þær eru í gangi. Þess vegna hljótum við að þurfa og eigum að leggja mikla áherslu á að allar íþróttagreinar sitji við sama borð þegar kemur að umfjöllun, umsýslu og öðru slíku. Ég held að það sé mjög mikilvægt líka að viðurkenna það að með nýjum íþróttagreinum, hvort sem þær heita rafíþróttir eða eitthvað annað. Þá náum við til hóps í íþrótta- og ungmennastarfi sem við höfum kannski ekki náð til áður og það er að sjálfsögðu mjög til bóta, herra forseti.

Það kom líka fram að það var vilji til þess, ekki eingöngu hjá æskulýðshreyfingunni heldur líka stúdentum, að þingmálið myndi ná til þeirra og er miður að ekki tókst að ná því í gegn. Ég furða mig aðeins á orðalaginu í nefndarálitinu um að það hefði verið svo umfangsmikið eða eitthvað slíkt. Ég ætla að vitna beint í nefndarálitið, með leyfi forseta:

„Meiri hlutinn telur að svo stöddu ekki unnt að leggjast í svo umfangsmiklar breytingar á frumvarpinu. Hann bendir á að stjórnvöld hafi um þessar mundir aftur komið með úrræði til að tryggja atvinnutækifæri fyrir námsmenn um sumar.“

Það leiðir mig að því að þegar það kemur hér fram í nefndarálitinu að komið hafi verið til móts við námsmenn með einhverjum hætti með atvinnu í sumar þá er það vitanlega allt annað mál en hér er um að ræða þótt jákvætt sé. En á sama tíma sjáum við að þeim sem vilja nota sumarið í að mennta sig stendur ekki til boða að fara í nám annars staðar en á vegum ríkisins eða hins opinbera. Ríkisstjórnin, eða einhverjir innan hennar alla vega, einhverjir flokkar eða jafnvel einstakir þingmenn, telja sig vera boðbera mikils frelsis nú á dögum, frelsis þar sem á að verja einstaklinginn og auka samkeppni og öll þessi fínu orð sem notuð eru á tyllidögum. En það nær hins vegar ekki inn í vinnu ríkisstjórnarinnar þegar við sjáum að hundruð milljóna eru veitt til námskeiðahalds á vegum ríkisins eða opinberra aðila í sumar, tengt menntun og fræðslu, meðan þeir aðilar sem skapa atvinnu í einkageiranum á þessum vettvangi, með fjölbreytt framboð af ýmiss konar fræðslu og námsefni, fá í rauninni ekki krónu. Öll summan fer inn og út úr ríkiskassanum með einum eða öðrum hætti. Þetta er að mínu viti mjög gagnrýnisvert og ekki til þess fallið, bara alls ekki, til að byggja undir það sem koma skal í framtíðinni, þ.e. hvernig við höldum svo út úr því ástandi sem er í dag, hvernig við byggjum upp. Við þurfum nefnilega að fara að horfa til þess núna. Þessa ríkisstjórn skortir algjörlega sýn á hvernig við ætlum að byggja aftur upp okkar góða land, hvernig við ætlum að byggja upp íþróttafélögin, atvinnulífið, þannig að við getum komið sterk út úr þessum leiðinlega faraldri sem á hefur okkur herjað. Við þurfum að fara að horfa til þess hvernig við ætlum að halda hér á málum, hvernig við ætlum að skapa tekjur, skapa atvinnu, búa til tækifæri fyrir t.d. þá sem þiggja samkvæmt þessu þingmáli einhvers konar stuðning eða bætur eða hvað það heitir, og ná að koma þeim af stað aftur, reisa þá við þannig að þeir þurfi ekki stuðnings ríkisins við og geti farið að afla tekna sjálfir. Þetta er til bráðabirgða, það er alveg ljóst, og tekur enda á einhverjum tímapunkti. Við höfum hins vegar ekki séð neitt af hálfu ríkisstjórnarinnar um hvernig á að gera þetta. Sú fjármálaáætlun sem við höfum séð, fjármálastefna, tekur ekki á þessu að mínu viti. Það er of óljóst og of grátt plagg, svo ég leyfi mér að orða það þannig, til að veita einhverja sýn um hvernig við eigum að fara inn í framtíðina út úr þessu ástandi, hvernig við eigum að skapa störf og verðmæti sem svo sannarlega þarf á að halda.

Ég held að það sé mjög mikilvægt að við komum því strax á framfæri að við þurfum að gera það með því að búa til umhverfi fyrir þessi félög og fyrirtæki, fyrir atvinnulífið á Íslandi til að það geti vaxið og dafnað, til að það geti aukið veltu sína og tekjur og ráðið til sín fleira fólk og þannig sótt til sín fólkið sem er á bótum eða fólkið sem fær stuðning. Ég held að það sé eitthvað sem við verðum að kalla eftir, að fá að sjá á spilin. Það bendir allt til þess að ríkisstjórnin sem nú situr hafi myndað einhvers konar bandalag um að sitja áfram, fái hún til þess stuðning. Þá þurfum við að horfast í augu við það, verði það þannig, sem ég vona að sjálfsögðu ekki, þá er ekki búið að sýna okkur fram á neitt um hvernig á leysa á þau vandamál sem við blasa. Miðað við hvernig tekið er á málum í dag þá er ég ekki bjartsýnn á hvað kæmi út úr slíkum aðgerðum.

Ég ætla að ítreka það sem ég sagði áðan. Þegar við framlengjum aðgerðir eins og þessar og þó að gert sé ráð fyrir ákveðnu sólarlagsákvæði í þessu öllu saman þá verðum við líka að geta sagt við þetta frábæra fólk okkar sem við erum að styðja að við sjáum fyrir okkur að við ætlum að reisa við eða bæta eða breyta hlutunum til betri vegar með þessum hætti.

Ég ætla að leyfa mér að segja að við verðum að horfa á hvernig við getum styrkt fyrirtækin í landinu, alveg sama hvað þau heita. Við þurfum að horfa til þess hvernig við getum aukið tekjur þeirra. Hvernig getum við gert það? Við getum gert það m.a. í gegnum skattkerfið, með því að skapa þeim auðveldara rekstrarumhverfi, með því að einfalda allt það kerfi sem þau búa við o.s.frv. Þetta á að sjálfsögðu líka við um íþróttafélög og æskulýðsfélög og aðra slíka sem eru með einhvers konar starfsemi á sinni könnu.

Nú er ein breytingartillaga frá minni hluta nefndarinnar sem er lögð fram varðandi þetta mál. Eins og við má búast er þetta fína og ágæta og góða fólk sem leggur það fram með góðar meiningar að baki, en ég átta mig hins vegar ekki alveg á því hvernig á að útfæra þessa hugsun, að hægt sé að hafna starfi í atvinnuleit ef það passar ekki við menntun eða starfsreynslu viðkomandi. Eflaust er hægt að útfæra það með einhverjum hætti, en ég hugsa að það geti verið mjög snúið hvar eigi að draga mörkin. En við sjáum til. Kannski skýrist það í umræðunum sem eiga eftir að fara fram um þetta mál.

Til að hafa allt á hreinu þá er þetta mál til bóta, það er ljóst. Það er verið að framlengja ákveðnar aðgerðir sem mikilvægt er að framlengja. Vitanlega hefði verið kostur ef við hefðum ekki þurft að framlengja, en það er ljóst að staðan er önnur. Við erum nokkru seinna í því að reisa landið við miðað við helstu yfirlýsingar á sínum tíma. En við ráðum því svo sem ekki alveg ein, við verðum að hafa einhvern smá skilning á því. Það er hins vegar það sem koma skal sem skiptir langmestu máli núna og þar hafa núverandi stjórnvöld, ríkisstjórnin, skilað auðu.

Mig langar í lokin til að ítreka það sem ég sagði fyrr í ræðu minni: Ég held að það hafi aðeins skort vilja til að leysa þetta mál, þ.e. að koma til móts við þær ábendingar sem fram komu. Mig langar að grípa hér ofan í eina umsögn og ætla svo sem ekki að hafa eftir nöfnin á þeim félögum sem hér eru nefnd. Þar segir að öllum megi vera ljóst hve galið það er að t.d. karatedeild geti sótt stuðning í nafni laganna, en skátafélag sé skilið eftir fyrir utan. Báðir aðilar standi fyrir öflugu og faglegu æskulýðsstarfi og báðir aðilar tilheyri heildarsamtökum með þjónustusamning við mennta- og menningarmálaráðuneytið. Nú gefist tækifæri til að leiðrétta.

Ég tek undir þetta því að þarna er klárlega um ákveðna mismunun að ræða á milli tveggja aðila sem eru undir sama hatti, sinna sömu eða svipuðum verkefnum sem miða að því að bæta manninn, heilsuna og hugann. Þess vegna hefði verið betra, þó að málið sé til bóta, að þessir aðilar hefðu einnig verið settir undir þennan hatt og þær breytingar sem við erum að gera hér, verði þær samþykktar, sem ég geri fastlega ráð fyrir. Ég held að það séu allir sammála því að samþykkja þetta. Menn hafa alltaf verið einhuga í þessum Covid-tengdu málum, eða nánast alltaf. En það er hins vegar kominn tími til að fara að ræða stjórnmál, ræða pólitík og hvað tekur við.