atvinnuleysistryggingar og greiðslur til íþróttafélaga vegna launakostnaðar og verktakagreiðslna á tímum kórónuveirufaraldurs.
Forseti. Hv. þingmaður fór yfir þó nokkur atriði er varða ástæður þess að fólk væri jafnvel ekki að þiggja störf sem væri verið að bjóða því. Þetta var mjög góð yfirferð á því. Til dæmis voru bæði ASÍ og Samtök ferðaþjónustunnar á fundi fjárlaganefndar með umsagnir sínar um fjáraukalög þar sem þau voru að telja upp svipaðar ástæður; að kannski væri einhver einn sem vildi ekki koma aftur fyrr en eftir sumarfrí. Sumarfrí á atvinnuleysisbótum er kannski alveg til en er eðlilegt í þessu ástandi að fólk ætli þá að sækja sér vinnu eftir tæpan mánuð. Það voru dæmi um að fólk væri að bíða eftir fyrra starfi, þ.e. væri á atvinnuleysisbótum og fyrrum atvinnuveitendur væru búnir að gefa vilyrði um að þegar allt færi í gang hjá þeim kæmu viðkomandi til þeirra. Að sjálfsögðu bíður fólk eftir því. Það eru dæmi um að fólk fái boð um sama starf en fyrir lægri taxta. Það er fullt af mismunandi ástæðum fyrir því að fólk hefur verið að hafna störfum. (Forseti hringir.) En sum dæmi, eins og t.d. sumarfríin, eru dregin upp sem dæmigerðar lýsingar á því hvað er í gangi á þessum vettvangi sem er rosalega ósanngjarnt. (Forseti hringir.) Við á þinginu erum ekki með neina yfirsýn yfir það í rauninni hvað er í gangi. Það virðist vera allt í gangi (Forseti hringir.) en verið er að draga upp mjög sértæk dæmi sem eru slæm dæmi og (Forseti hringir.) látið er líta út fyrir að þau séu dæmigerð.