151. löggjafarþing — 109. fundur,  8. júní 2021.

atvinnuleysistryggingar og greiðslur til íþróttafélaga vegna launakostnaðar og verktakagreiðslna á tímum kórónuveirufaraldurs.

775. mál
[17:05]
Horfa

Sigurður Páll Jónsson (M) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir prýðisræðu. Hann fór yfir sviðið svolítið vítt og breitt eða tók svolítið stórt svið undir í ræðunni og það var mjög áhugavert þar sem við erum að ræða um atvinnuleysistryggingar og úrræði stjórnvalda í kjölfar Covid. Hv. þingmanni varð tíðrætt um hagkerfi og fjölbreytni og úrræði hvað það varðar eða fjölbreytt hagkerfi. Það sem ég hef verið að velta fyrir mér, bara við að hlusta á ræður og kynna mér málið, er að við getum hugsað hvað við gerum á þessum tímamótum þegar við erum að sjá fram á bjartari tíma. Covid-faraldurinn er á undanhaldi. Ég gef mér að veröldin verði ekki söm á eftir. Hvernig getur þingmaðurinn séð það fyrir sér að við getum hvatt ungt fólk? Ég hef hugsað mest um ungt fólk, kannski þá eldri í leiðinni. Við erum öll, leyfi ég mér að segja, þannig af guði gerð að við erum félagsverur í grunninn, hvort sem okkur líkar betur eða verr. Hvernig getum við útvíkkað þá fjölbreytni sem þarf til að þetta geti hentað sem flestum? Varla erum við bara að horfa á, eins og í þessu tilfelli, einhver þröng sjónarmið eins og íþróttaheiminn o.fl. Þá kemur mér í hug orðið hvati. Gæti þingmaðurinn séð fyrir sér hvata, af því að hagkerfið var undir í ræðu þingmannsins?