atvinnuleysistryggingar og greiðslur til íþróttafélaga vegna launakostnaðar og verktakagreiðslna á tímum kórónuveirufaraldurs.
Herra forseti. Ég kann vel að meta það að hv. þingmaður kenni Pírötum um alla framþróun hagkerfisins sem hefur orðið til þess að við erum brjálæðislega rík þjóð og þannig. Ég er samt ekki viss um að við eigum rétt á þeim titli vegna þess að við höfum ekki enn fengið að vera í ríkisstjórn. En sjáum til. Markmið hagkerfisins er ekki að allir vinni öllum stundum. Markmið hagkerfisins er ekki að framleiða eins mikið og mögulegt er. Það getur verið að það sé markmið ákveðinna stjórnmálamanna en það er ekki markmið hagkerfisins. Markmið hagkerfisins er að allir búi við gnægt, hafi nóg í sig og á, og búi við næga velferð, bæði líkamlega og andlega, til að geta gert það sem þeir vilja við líf sitt. (Gripið fram í.) Höfum í huga að hagkerfið er allt fólkið og allt sem fólkið gerir. Vandinn sem ég er að reyna að lýsa er ekki að einhverjir séu einhvern veginn að svindla á kerfinu eða reyna að fá sína framfærslu án þess að leggja neitt af mörkum. Það eru kannski einhverjir sem gera það og sumir eru reyndar í vinnu. Sumir eru húðlatir og þiggja laun fyrir. Það er vel þekkt á mörgum vinnustöðum, t.d. þessum. En það er ekki vandamálið sem ég er að reyna að takast á við. Vandamálið sem ég er að reyna að takast á við er: Við vitum að það er offramleiðsla á alls konar hlutum í þessu samfélagi. Við vitum að fólk er að vinna of mikið. Við vitum líka að það er betra og hagkvæmara fyrir hagkerfið í heild sinni ef fólk vinnur við hluti sem það kann og getur og vill vinna við frekar en að þurfa að taka einhverju starfi bara til að tikka í einhvers konar box mótmælenda vinnusiðferðisins. (Forseti hringir.) Og við verðum að hætta að viðhalda því kerfi vegna þess að það kerfi er farið að vinna skaða á samfélaginu okkar, hagkerfinu og, meðan ég man, plánetunni okkar.