151. löggjafarþing — 109. fundur,  8. júní 2021.

atvinnuleysistryggingar og greiðslur til íþróttafélaga vegna launakostnaðar og verktakagreiðslna á tímum kórónuveirufaraldurs.

775. mál
[17:24]
Horfa

Guðmundur Andri Thorsson (Sf):

Virðulegi forseti. Þetta hafa verið skemmtilegar, gagnlegar og inntaksríkar umræður hér. Þetta er ekki alveg einfalt mál. Það hefði kannski mátt ætla af þeim orðaskiptum sem farið hafa fram hér að það sé mjög algengt og nánast regla að atvinnuleitendur afþakki þá vinnu sem þeim standi til boða og kjósi heldur að vera á atvinnuleysisbótum. En því fer fjarri. Eins og kom fram í ræðu hér áðan hjá hv. þm. Helgu Völu Helgadóttur þá eru innan við 2% sem neita störfum. Eins og fólk hefur rakið hér þá eru til þess ótal ástæður, yfirleitt eðlilegar ástæður og yfirleitt tímabundnar ástæður. Hitt er svo annað mál að svona almennt erum við á fleygiferð, samfélag og nútímasamfélag er á fleygiferð í þróun í átt til þess sem stundum er kallað harkhagkerfið, alveg sérstaklega hjá ungu fólki sem enn hefur ekki bundist fjölskyldutengslum. Það starfar tímabundið við einhver tiltekin störf, iðulega í þjónustugreinum, og oft eru tengsl launamannsins og atvinnurekandans lausbeislaðri en í hefðbundnum fyrirtækjum. Bæði eru gagnkvæmar skyldur minni og eins eru réttindi launamanna minni. Þetta er, held ég, eitt af stóru verkefnum verkalýðshreyfingarinnar og Samtaka atvinnulífsins. Eitt af þeim stóru verkefnum sem bíða þeirra er að tryggja þessi réttindi, tryggja að réttindi launamanna hrapi ekki niður á það stig sem það var í kringum iðnbyltingu eða áður en verkalýðshreyfingin varð að því afli í samfélaginu sem mótað hefur samfélög okkar, ekki síst samfélög okkar hér í Norður-Evrópu, með þeim hætti að launafólk býr við alls kyns mikilsverð réttindi og almannatryggingar eru hér með tilteknum hætti, þó að vissulega mætti þar margt betur fara.

Ég vildi aðeins árétta þetta áður en lengra er haldið.

Hitt er svo aftur annað mál að það er ekki nýlunda og það eru ekki uppfinning Pírata, eins og hefði mátt jafnvel ætla hér af orðum hv. þm. Brynjars Níelssonar, að til sé fólk sem kærir sig ekki um að taka þátt í hefðbundinni launavinnu, heldur vilji verja tíma sínum í listsköpun, garðyrkju, gróðursetningu eða hvaðeina það sem fólk fýsir að gera til þess að auðga líf sitt og annarra, nú eða bara að liggja í leti og gera ekki neitt. Það eru líka dæmi þess í gegnum mannkynssöguna og kom ekki fram með stofnun Pírata, held ég að mér sé alveg óhætt að segja. Við höfum alltaf átt fólk sem telur að það eigi að vera á kaupi við að vera til. Og sumu fólki hefur meira að segja tekist bara dável að sannfæra aðra um nauðsyn þess líka. Út úr slíku fólki hafa oft komið umtalsverð verðmæti og andleg afrek. Það má færa fyrir því rök að Halldór Laxness, okkar fremsti rithöfundur á síðustu öld, hafi verið letingi sem aldrei nennti að vinna ærlega vinnu, og ég held að ýmsir hafi litið svo á að hann væri landeyða sem væri byrði á skattborgurunum. En þegar upp er staðið held ég að við séum flestöll á einu máli um að hann hafi afrekað mikið og margt á sinni ævi og verið ákaflega vinnusamur maður. Enda sagði hann að rithöfundur þyrfti aðeins að hafa einn góðan eiginleika, og ég bið forseta fyrir fram forláts á munnsöfnuðinum, en það væri að hafa góðan rass, þ.e. að rithöfundur þyrfti að vera duglegur að sitja við.

Hér er um að ræða ágætt mál sem sjálfsagt og eðlilegt er að framlengja. Það er sjálfsagt og eðlilegt að framlengja þetta úrræði. Ég hlýt þó að nefna það í þessum ræðustól að ég tel að það sé mjög miður að ekki hafi náð fram að ganga tillaga frá minni hluta velferðarnefndar, þeirra Helgu Völu Helgadóttur, Guðmundar Inga Kristinssonar og Halldóru Mogensen, um að leggja til breytingar á þessu frumvarpi til þess, eins og segir í nefndaráliti minni hlutans með breytingartillögunni, að bregðast við fyrirsjáanlegum atvinnuvanda námsmanna á komandi sumri. Þar segir líka að það sé deginum ljósara að fjölmargir námsmenn verði án atvinnu yfir sumartímann og þeir verði þar með af tekjum sem þeir hefðu ella reitt sig á. Þess vegna lagði minni hlutinn til að námsmönnum yrði tryggður réttur til atvinnuleysisbóta í sumar.

Í þessu sambandi benti minni hlutinn á að allt að 70% námsmanna framfleyta sér með hlutastörfum samkvæmt könnun Eurostudent, og ég hygg að óvíða í heiminum sé atvinnuþátttaka námsmanna jafn mikil og hún hefur þróast út í að vera hér á landi. Það liggur við að það sé nánast regla að fólk sem er í námi hafi með höndum einhver störf meðfram þessu námi til að framfleyta sér. Og það segir sig sjálft að slík vinna meðfram námi mun fyrr eða síðar bitna á náminu. Það bitnar á gæðum námsins, það bitnar á einbeitingu að náminu og það getur bitnað á heilsu námsmanna vegna þess að þessu fylgir gríðarlegt álag. Það væri miklu eðlilegra að samfélagið byndist samtökum um að námsmönnum yrði tryggt að geta lifað og framfleytt sér raunverulega af námslánum og kjör á þeim lánum væru betri.

Vakin er athygli á því í þessu samhengi að á undanförnum tíu árum hefur námsmönnum sem taka námslán fækkað um helming. Þetta er að sjálfsögðu yfirleitt vegna þess að framfærslufjárhæð námslána er ónóg. Á vinnumarkaðnum greiða námsmenn sinn hluta inn í atvinnuleysistryggingakerfið, en þeir njóta samt sem áður ekki réttinda í kerfinu. Það segir sig sjálft að það er ranglátt, það er misrétti og það er óboðlegt fyrir þau sem við það búa. Þessi mikla vinna meðfram námi hefur líka bitnað sérstaklega á námsmönnum í veirufaraldrinum vegna þess að þau störf sem námsmenn inna af hendi eru og hafa yfirleitt verið í þjónustugeiranum. Þetta eru störf á veitingahúsum, gistihúsum og þar fram eftir götunum. Þetta eru störf sem oft eru tengd ferðaþjónustu með einum eða öðrum hætti og þau störf hafa að sjálfsögðu hrunið. Þannig að þetta er mikið réttlætismál mál og það hefði óneitanlega farið betur á því að Alþingi hefði treyst sér til þess að samþykkja þetta mál.

Stúdentaráð hefur verið mjög duglegt við að vekja athygli þingsins á kröfum sínum. Krafa stúdentaráðs er einföld, eins og segir í ágætri og greinargóðri umsögn stúdentaráðs við þetta mál. Hún snýst um, eins og þar segir, að vinnandi námsfólk geti sótt sér þann rétt sem það hefur áunnið sér með greiðslu atvinnutryggingagjalds, eins og kom fram í ræðu minni, samkvæmt 3. gr. laga um tryggingagjald sem launagreiðendur greiða af launum þeirra, og að þeir geti nýtt sér þetta til jafns við annað vinnandi fólk og án þess að vera mismunað fyrir að stunda nám.

Herra forseti. Það er ekkert sjálfsagt mál að ungt fólk vilji búa hér á landi þegar fram líða stundir. Þegar það hefur stofnað sínar fjölskyldur og eignast sín börn og hyggst hasla sér völl á vinnumarkaði og hyggst skapa sér líf er ekkert sjálfsagt að það þurfi endilega að vera hér á landi. Þá er mikilvægt að við sem samfélag gerum vel við okkar námsmenn vegna þess að það mun skila sér margfalt til baka, bæði í ánægjustundum og jafnvel í kílóvattstundum og gott ef ekki hreinlega líka í mannárum.