151. löggjafarþing — 109. fundur,  8. júní 2021.

atvinnuleysistryggingar og greiðslur til íþróttafélaga vegna launakostnaðar og verktakagreiðslna á tímum kórónuveirufaraldurs.

775. mál
[17:39]
Horfa

Gunnar Bragi Sveinsson (M) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ljómandi góða og skemmtilega ræðu. Það var áhugavert að heyra þingmanninn lýsa þessum mikilvæga hluta okkar samfélags, að það séu einhverjir sem gefa sér tíma til að hugsa, liggja í algerri leti og hugsa. Ég ætla ekki að fara djúpt inn í umræðu við hv. þingmann um listir, menningu og rithöfunda. Þar er hann töluvert mikið sleipari en sá er hér stendur. Ég verð þó að segja að ég er sammála þingmanninum um að það er mjög mikilvægt fyrir hverja þjóð að eiga öflugt menningar- og listalíf og það eigum við svo sannarlega að styðja.

Mig langar líka að segja að það er í rauninni ákveðin skammsýni, held ég, að stjórnvöld skuli ekki sjá sér hag í að víkka út þetta mál sem við erum að fjalla um hér. Það er ákveðin skammsýni vegna þess að við erum að tala um námsmenn og við erum að tala líka um félagasamtök, æskulýðssamtök sem vinna gott starf. Það er á sama tíma mikilvægt fyrir okkur að gera grein fyrir því að jafn mikilvægt og það er að við leyfum fólki að hugsa og liggja jafnvel í leti þá væri slíkt samfélag ekki mjög sjálfbært ef allir gerðu það. En það þurfa að vera einhverjir hvatar til að fólk sæki sér menntun, eins og þingmaðurinn benti á. Menntun er vinna. Þar af leiðandi finnst okkur sem hér stöndum, mörgum hverjum, að það sé eðlilegt að þessir aðilar hafi stuðningsnet meðan þeir eru í námi.