ratvinnuleysistryggingar og greiðslur til íþróttafélaga vegna launakostnaðar og verktakagreiðslna á tímum kórónuveirufaraldurs.
Herra forseti. Mig langar að ræða aðeins áfram stöðu námsmanna, sem hv. þingmaður nefndi í ræðu sinni og andsvörum við hv. þm. Gunnar Braga Sveinsson, vegna þess að íslenskir stúdentar eru í allt annarri stöðu en evrópskir kollegar þeirra. Hér var nefnd Eurostudent-könnunin sem leiðir í ljós að 70% námsmanna reiða sig á vinnu með námi til að framfleyta sér vegna þess að framfærslukerfi námslána dugar ekki til. Það er miklu hærra hlutfall en í öllum öðrum löndum, en íslenskir stúdentar eru líka eldri. Hlutfall stúdenta undir 25 ára aldri er hið næstlægsta á Íslandi af öllum Evrópuríkjum sem taka þátt í Eurostudent. Íslenskir stúdentar eru lengur að koma sér í gegnum háskólann, m.a. vegna þess að vinnan tekur frá þeim tíma, orku og einbeitingu sem gæti annars farið í námið. Þannig að það að tryggja mannsæmandi kjör í gegnum hið opinbera framfærslukerfi er markmið í sjálfu sér, markmið sem hefur ekki verið staðið við, eins og við sem fylgdumst með frumvarpi um Menntasjóð námsmanna fara í gegn, reiknuðum með að yrði komið á allt annan stað en raunin er í dag. Það er bara búið að hækka grunnframfærslu námsmanna tímabundið um 6% vegna Covid, það er ekki nein varanleg hækkun á grunnframfærslu sem nauðsynleg er og ekki er heldur verið að taka á þeirri staðreynd að námslánakerfið gerir ráð fyrir því að námsmenn séu með fullar tekjur þrjá mánuði á ári vegna þess að námslán eru veitt í níu mánuði á ári. Þess vegna langar mig að spyrja þingmanninn hvort hann kunni einhverja skýringu á því skeytingarleysi sem stjórnarmeirihlutinn hefur sýnt gagnvart síendurtekinni og einfaldri kröfu námsmanna um öryggisnetið sem felst í atvinnuleysistryggingum í námshléum.