151. löggjafarþing — 109. fundur,  8. júní 2021.

atvinnuleysistryggingar og greiðslur til íþróttafélaga vegna launakostnaðar og verktakagreiðslna á tímum kórónuveirufaraldurs.

775. mál
[17:51]
Horfa

Guðmundur Andri Thorsson (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Í sjálfu sér hef ég ekki skýringar á reiðum höndum á því hvernig stjórnarmeirihlutinn hugsar. Ég held raunar að þeir sem stjórna landinu séu kannski, ég segi ekki af minni kynslóð heldur eitthvað svolítið yngri. En fólk sem er af minni kynslóð hefur ákveðna rómantíska sýn á þessa hluti. Sjálfur vandist ég því þegar ég var á mínum námsárum að á sumrin fór maður jafnvel eitthvert út á land og maður var í byggingarvinnu hér og þar um landið, maður var í fiskvinnu, maður var í alls konar verkamannavinnu og hafði gott af þessu. Maður þénaði vel á þessu og svo gat maður lifað af þessu svolítið fram eftir vetri. Þessi tími er löngu liðinn, eins og hv. þingmaður rakti ágætlega hér áðan. Það er óeðlilega og ískyggilega hátt hlutfall námsmanna sem þarf að vinna með náminu, þarf að vera í stöðugri vinnu með þeirri miklu vinnu sem náminu fylgir og almennt og yfirleitt má segja að þetta sé allt of mikið basl. Það er allt of mikið basl að vera námsmaður á Íslandi. Það er allt of mikil basl sem fylgir því að vera ungt fólk á Íslandi, hvort sem það er þetta framfærslukerfi námsmanna sem við erum að tala um eða bara húsnæðisumhverfið, sem við erum ekki einu sinni farnir út í að ræða. Eigum við að tala um matarverðið? Hvar sem litið er á lífskjör ungs fólks á Íslandi þá er þetta allt of mikið basl.