151. löggjafarþing — 109. fundur,  8. júní 2021.

atvinnuleysistryggingar og greiðslur til íþróttafélaga vegna launakostnaðar og verktakagreiðslna á tímum kórónuveirufaraldurs.

775. mál
[17:53]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P) (andsvar):

Herra forseti. Það er þessi rómantíska sýn sem þingmaðurinn nefnir sem ég held að sé kannski vandamálið, þegar fólkið sem vélar um þessi mál er kannski fast í einhverri hugmynd um að það sé bara allt í lagi að vera stúdent að harka. Sveltandi stúdentinn sé einhvern veginn rómantísk mynd sem fólk sér fyrir sér, mögulega vegna þess að öll þessi kerfi sem hv. þingmaður nefnir, sem eru stuðningskerfin okkar í samfélaginu, voru bara allt annars eðlis þegar þetta fólk, sem er af annarri kynslóð, gekk í gegnum háskólanám. Ég veit það ekki. En eins og stendur í umsögn stúdentaráðs Háskóla Íslands, sem hv. þingmaður vísaði til, þá er krafan svo ofureinföld og hún snýst ekki um einhverja bitlinga. Viðbragðið hjá stjórnarliðunum virkar eins og það sé einhver ölmusa í gangi hérna. Hún snýst bara um það að námsfólk sem er á vinnumarkaði og missir þá vinnu geti sótt sér atvinnuleysisbætur í námshléum þegar það fær ekki námslán, bara út á það atvinnutryggingagjald sem viðkomandi hefur greitt í sameiginlega sjóði. Þau vilja bara fá út úr sjóðnum það sem þau hafa lagt inn. Og af því að stúdentaráð er nánast í hálfu starfi við að skrifa umsagnir um þetta sama atriði trekk í trekk til þingsins er vert að nefna að þau hafa undirbyggt sína afstöðu mjög vel, hafa gert hverja könnunina á fætur annarri í sínum hópi. Í þeirri síðustu kom fram að af stúdentum á landsvísu segist fjórðungur glíma við mikla eða mjög mikla fjárhagsörðugleika. Mennt er máttur, segja þeir, en það er ekki mikill máttur í fólki þegar það hefur ekki efni á að fæða sig og klæða.