atvinnuleysistryggingar og greiðslur til íþróttafélaga vegna launakostnaðar og verktakagreiðslna á tímum kórónuveirufaraldurs.
Forseti. Þetta mál vekur athygli hjá mér í stærra samhengi. Hér er verið að fjalla um atvinnuleysistryggingar og þessa tíma kórónuveirunnar. Byrjum aðeins á grunnatriðunum. Við höfum verið að fá umsagnir, t.d. frá Samtökum ferðaþjónustunnar og ASÍ, inn í fjárlaganefnd varðandi fjárheimildir vegna fjárauka í kringum þetta mál. Þar hafa komið fram umsagnir þar sem verið er að ýja að því að fólk sé að svindla sér eitthvað fram hjá kerfinu. Þar eru dregin upp einstök dæmi en ekki einu sinni reynt að útskýra hversu víðtæk þau dæmi séu, hversu almenn þau séu. En það er einhvern veginn reynt að láta það hljóma eins og þau séu almenn og eigi við um miklu fleiri en raunin er.
Þetta snýst um yfirsýn yfir vandann. Í þessu máli höfum við heldur ekki neina yfirsýn yfir vandann þegar allt kemur til alls. Hvert var markmiðið með þessum breytingum og hvaða árangri skiluðu þær miðað við aðra möguleika? Það er þaðan sem ég kem dálítið inn í þessa aðra möguleika og það er ekki endilega eitthvað sem er viðeigandi akkúrat núna en það eru atriði sem við þurfum að huga að í framtíðinni.
Í ræðu og andsvörum talaði hv. þm. Helga Vala Helgadóttir um atvinnuleysiskerfið sem grípur fólk tímabundið þangað til það getur komið undir sig fótunum í nýju starfi eða í nýrri virkni, eins og það hefur oft verið orðað. Vandinn er kannski að atvinnuleysisbótakerfið og tryggingakerfið er ekkert rosalega tímabundið. Við erum að tala um ár, meira en ár. Það er rosalega langur tími til þess að ná sér aftur á strik á þeim kjörum eða bótum sem um ræðir. Þess konar kerfi sem við erum að nota núna á eftir að úreldast tiltölulega hratt á næstu árum með aukinni sjálfvirknivæðingu sem mun hafa áhrif á vinnumarkaðinn til framtíðar. Það er áhugavert í tengslum við umræðu um nemendur, eins og líka var talað um hér.
Sjálfvirknivæðing framtíðar, sjálfvirknisamfélag framtíðarinnar, ekkert svo rosalega fjarlægrar, mun virka á þann hátt að helstu nauðsynjar munu nær ekkert kosta í framleiðslu. Þá á ég aðallega við handverk, tíma mannsins. Það verður ekki fólk sem mun framleiða þær nauðsynjar sem við munum þurfa til að hafa ofan í okkur og á, þak yfir höfuðið, mat og föt og eitthvað afgangs til að hafa það gott og geta valið okkur mismunandi áhugamál og þess háttar.
Nauðsynjarnar verða nokkurn veginn ókeypis og vinkill Pírata kemur dálítið þaðan inn í t.d. höfundaréttarmálin. Þaðan koma Píratar dálítið inn í pólitíkina, þar sem menn lentu í vandræðum með höfundaréttinn þar sem allt í einu var hægt að búa til endalaus afrit af stafrænu höfundarverki. Í fyrsta lagi kostaði ekkert að búa til nýtt eintak. Af hverju þurfti fólk þá að borga svona rosalega mikið fyrir það? Það er ýmislegt flókið í því samhengi. Allt í einu varð til óendanleg auðlind, praktískt séð. Við höfum í raun aldrei þurft að glíma við óendanlega auðlind í mannlegu samfélagi.
Það breytir því hvernig við nálgumst hagkerfið, hvernig við nálgumst nauðsyn þess að geta lifað á þessari jörð og hvað það þýðir einmitt fyrir atvinnuleysistryggingakerfi því að ef allar nauðsynjar eru fríar hvort eð er af því þær eru sjálfvirkt framleiddar, afritaðar að vissu leyti af vélum og engin mannshönd kemur þar nálægt, til hvers þarf fólk þá að fá pening? Vissulega er það þá vegna alls hins sem fólk gerir í tómstundum, í félagslegu starfi o.s.frv. þar sem mannshöndin kemur nálægt. En hérna er þróunin að byrja. Sjálfvirknivæðingin er að taka rosalega stórt stökk á rosalega mörgum sviðum í matvælaframleiðslu, í orkuframleiðslu, í þrívíddarprentun; hús hafa í raun verð prentuð, stór róbóti mætir bara og upp rís nokkurn veginn fullbúið hús.
Þetta ætti að vekja okkur til umhugsunar um það hvernig atvinnuleysistryggingakerfið ætti að fara að þróast. Þar finnum við úrræði eins og t.d. VIRK sem er mjög sniðugt. Þar finnum við úrræði eins og úrræði ríkisstjórnarinnar núna, Hefjum störf, sem er kannski frekar flókið. Þar finnum við úrræði eins og það að leita til sveitarfélaga og annarra aðila um að útvega hreinlega störf og spyrja hvað þau hafi fyrir fólk til að gera, til þess að mennta sig á nýjum vettvangi. Þarna ættum við að huga aðeins að þessum mennta- og nýsköpunarvinkli inn í atvinnuleysistryggingakerfið í heild sinni.
Hérna erum við auðvitað að glíma við íþróttafélög sérstaklega og hvernig fyrirkomulagið er þar og það virkar svo sem aðeins öðruvísi. Við viljum halda þessari starfsemi í gangi en í stærra samhenginu þurfa þessi atriði að passa saman. Í umhverfi þar sem það kostar ekkert að fá nauðsynjar — og þegar ég segi ekkert þá meina ég nánast ekkert, það er að sjálfsögðu alltaf einhver efniskostnaður en hann fer minnkandi, þar vísa ég t.d. í þingsályktunartillögu mína um kjötrækt þar sem ein kjötfruma margfaldast og getur fætt marga, við erum að tala um biblíuskalaframleiðslu á mat í rauninni. Kostnaðurinn við það er í lágmarki miðað við þann framleiðslukostnað á bæði plöntum og dýrum sem við sjáum í dag, ekki akkúrat eins og er en mun verða í nálægri framtíð. Ég býst fastlega við að upplifa það sjálfur, þess háttar samfélag.
Það skiptir máli þegar við nálgumst þau mál sem varða einmitt atvinnuleysistryggingar, eins og þetta mál, að við ættum að fara að huga að því hvort ekki er kominn tími til að hugsa hlutina aðeins öðruvísi. Eru tvö ár, af því að fólk sé að leita sér að starfi, eitthvað sem kemur til með að virka til framtíðar eða þurfum við að fara að hugsa hlutina öðruvísi? Þurfum við að virkja úrræði eins og VRIK meira? Þurfum við að virkja menntakerfið meira? Þurfum við að virkja nýsköpunarferlið fyrir atvinnulausa meira? Nýsköpunarfyrirtæki sem eru að byrja geta t.d. ekki ráðið fólk af atvinnuleysisskrá. Þau eru ekki búin að vera fyrirtæki nógu lengi og eru þar af leiðandi ekki gjaldgeng til að ná í einhvern af atvinnuleysisskrá, sem er mjög skrýtið því að þarna vill maður kannski leita að einhverjum sem er tilbúinn til að leggja út í nýjar leiðir, einhvern sem er búinn að vera á atvinnuleysisbótum í heilt ár og til í að prófa nýja hluti, í samvinnu við einmitt menntakerfið. Í samvinnu við það atvinnustyrktarkerfi sem við höfum séð t.d. með Hefjum störf, væri, held ég, hægt að gera miklu áhugaverðari hluti með atvinnuleysistryggingarnar.
Þetta fellur aðeins inn í hugmyndafræði MMT, með leyfi forseta, modern monetary theory, sem fjallar um atvinnutryggingu, vissa útfærslu á því að hið opinbera sé í rauninni alltaf með störf í boði, yfirleitt í einhvers konar umönnun eða eitthvað því um líkt. En það fellur aðeins inn í þá gagnrýni sem breytingartillaga minni hlutans, frá Halldóru Mogensen, Guðmundi Inga Kristinssyni og Helgu Völu Helgadóttur, fjallar um, að einnig skuli litið til þess hvort starfið hæfi starfsreynslu og menntun viðkomandi. Eitthvað eins og starfstrygging býður ekkert endilega upp á viðeigandi tengsl við starfsreynslu og menntun þess sem myndi ganga í atvinnutrygginguna. Með nýsköpunarvinkli væri möguleiki að ná í menntun og starfsreynslu inn á nýjan vettvang og prófa að búa til eitthvað nýtt.
Það er nefnilega mjög mikið um millisviðasamskipti núna, í vísindum t.d., þar sem vísindamenn úr ólíkum vísindagreinum læra hver af öðrum miklu meira og nýta svipaðar aðferðir. Þegar þeir skoða mismunandi viðfangsefni með svipuðum aðferðum og þegar þeir hittast þá átta þeir sig kannski á framþróun í þeim aðferðum sem þeir eru að nota sem hafa gagnast þeirra viðfangsefni og munu þá gagnast á öðru vísindasviði í öðru viðfangsefni líka af því að aðferðafræðin sem slík er svipuð. Þannig er líka hægt að taka fólk inn í nýsköpun sem er með starfsreynslu og menntun inn á vettvang sem á ekki beint við starfsreynsluna og menntunina, í nýsköpunartilgangi.
Það eru rosalega merkileg tækifæri, finnst mér, þessa dagana og á næstu árum til að breyta dálítið til á þessum vettvangi, ekki bara til þess að breyta heldur af því að það er nauðsynlegt að gera það til framtíðar út af sjálfvirknivæðingu í samfélaginu sem mun gjörbreyta þeim aðstæðum sem fólk hefur til að hafa ofan í sig og á. Af hverju ætti maður t.d. að borga 200 kr. fyrir mjólkurfernu þegar framleiðslan er mögulega sjálfvirk, ekki endilega beint úr kú heldur beint úr gervijúgri eða einhverju þvílíku þar sem framleiðslukostnaðurinn er miklu lægri og felur ekki í sig sér neina notkun á dýrum. Við getum í rauninni, mannveran sem slík, látið náttúruna í friði annars staðar en nákvæmlega þar sem við búum. Það verður mjög áhugaverð framtíð fyrir bæði sjálfbærnisjónarmið og okkar fótspor á þessari jörð sem við deilum með ýmsum öðrum lífverum, fótspor sem hefur farið mjög stækkandi á undanförnum áratugum og birtist okkur í mjög svartri mynd til framtíðar ef við gerum ekkert í því.