151. löggjafarþing — 109. fundur,  8. júní 2021.

atvinnuleysistryggingar og greiðslur til íþróttafélaga vegna launakostnaðar og verktakagreiðslna á tímum kórónuveirufaraldurs.

775. mál
[18:14]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (andsvar):

Forseti. Hið opinbera kaupir þjónustu af ansi mörgum aðilum, yfirlit yfir það er aftast í fylgiriti fjárlaga, fullt af mismunandi aðilum. Í þeim tilfellum þar sem undir eru sambærileg atriði og varðandi íþróttafélögin ættu tvímælalaust sömu sjónarmið að eiga við. Ef ríkið hefur gert samning um þjónustukaup við KFUM og KFUK eða skátana eða eitthvað því um líkt hljóta þessi sjónarmið að gilda fyrir þá starfsemi á nákvæmlega sama hátt myndi maður halda ef maður ætlaði að gæta einhvers konar jafnræðis. Annars væru stjórnvöld að veiða út suma af samningsaðilum sínum umfram aðra þrátt fyrir að samanburðurinn milli þeirra aðila sé næstum enginn. Kannski eru einhver málefnaleg rök fyrir því að mismunandi tegund af þjónustu eða eitthvað því um líkt geti útskýrt að það gangi ekki. En ég hef ekki séð umfjöllun um það eða greiningu á því hvort sá munur er til staðar eða ekki þegar þetta er lagt fram. Það er alltaf lagt fram í svo miklum flýti, og í rauninni framlengingin líka, að við fáum aldrei tíma til að leggjast gaumgæfilega yfir heildarmyndina í þeim frumvörpum sem komið hafa vegna Covid. Það sem slíkt er slæmt, sérstaklega ef við erum að horfa til jafnræðissjónarmiða, eins og hv. þingmaður minnist á.