151. löggjafarþing — 109. fundur,  8. júní 2021.

atvinnuleysistryggingar og greiðslur til íþróttafélaga vegna launakostnaðar og verktakagreiðslna á tímum kórónuveirufaraldurs.

775. mál
[18:16]
Horfa

Ólafur Ísleifsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Ég vil sérstaklega þakka honum fyrir að nefna jafnræðissjónarmið undir lok svars síns. Það stendur þannig á að það eru samtök sem hafa formlegan samning við mennta- og menningarmálaráðuneytið, eins og það heitir núna, í nafni íþrótta- og æskulýðsstarfs. Það sem kemur svo glögglega fram í þessari umsögn af hálfu KFUM og KFUK er að þetta er afmarkaður listi yfir þessi samtök. Eins og komist er að orði er ekki verið að opna á neinar óskilgreindar flóðgáttir þó að þau væru felld undir þessi lög, ég nefni jafnræðissjónarmiðið, eins og hv. þingmaður bendir svo skarplega á. Ég veit að hv. þingmaður á sæti í fjárlaganefnd og er vakandi fyrir því að skynsamlega sé staðið að málum í fjárhagslegum efnum og þessi ábending KFUM og KFUK er auðvitað innan þeirra skynsemismarka.

En það var líka annað sem mig langaði að hafa orð á við hv. þingmann og það er það sem hann vék að dálítið ítarlega og skemmtilega í sinni ræðu, þ.e. þær miklu breytingar sem eru fyrirsjáanlegar í atvinnulífinu með þeirri sjálfvirknivæðingu sem leiðir af tæknivæðingu. Alþjóðavæðingin flytur sömuleiðis störf á milli landa og þess vegna á milli heimsálfa. Hv. þingmaður nefndi réttilega að menn þurfi auðvitað að hafa augun opin fyrir þessari þróun, líka þegar lagt er á ráðin um framtíð atvinnuleysisbótakerfisins. Ég vil sérstaklega að þakka honum fyrir það og væri áhugasamur um að heyra sjónarmið hans örlítið nánar í þeim efnum.