151. löggjafarþing — 109. fundur,  8. júní 2021.

atvinnuleysistryggingar og greiðslur til íþróttafélaga vegna launakostnaðar og verktakagreiðslna á tímum kórónuveirufaraldurs.

775. mál
[18:18]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (andsvar):

Herra forseti. Mér sýnist ábending KFUM og KFUK vera mjög málefnaleg miðað við aðstæður þannig að ég hef svo sem ekkert meira um það að segja og hvet fólk bara áfram á þeim vettvangi. Þegar hið opinbera kaupir þjónustu á einhvern hátt er að sjálfsögðu alltaf líka verið að skoða hvað við fáum út úr þjónustunni, hvað hún kostar og þess háttar. Þegar upp kemur að verið er að velja íþróttahreyfinguna, sem er þá væntanlega með sambærilegan samning um kaup á ákveðinni þjónustu í samfélaginu, þá ættu aðrir aðilar — sem veita kannski ekki alveg nákvæmlega sambærilega þjónustu af því að ekki er um íþróttastarf að ræða heldur er hún sambærileg í kaupum og sölu á þjónustu til hins opinbera — hæglega að geta rétt upp hönd og sagt: En hvað með okkur? Ekkert ómálefnalegt við það.

Framtíðarsýnin sem ég dreg upp er rökrétt afleiðing af því þegar ég hugsaði um sjálfkeyrandi bíla. Þá hugsaði ég sem svo: Hvað með sjálfsiglandi báta sem fara út á miðin og veiða fiskinn, henda út veiðarfærum og koma þeim bara til baka sjálfsiglandi? Af hverju sendum við ekki bara litla sjálfsiglandi kafbáta sem grisja réttar stærðir af fiskum og svoleiðis? Svo fór maður að hugsa: Nei, bíddu, fyrirgefðu, af hverju er maður ekki bara að rækta fiskinn og lætur fiskinn í sjónum vera? Svo kemst maður eitt og eitt skref áfram í áttina að því hvað það þýðir í stærra samhengi þegar við erum hætt að veiða fisk af því að það er óþarfi o.s.frv. Það er alla vega mjög áhugaverð pæling að steypa sér ofan í þann brunn.