atvinnuleysistryggingar og greiðslur til íþróttafélaga vegna launakostnaðar og verktakagreiðslna á tímum kórónuveirufaraldurs.
Virðulegi forseti. Já, sjálfkeyrandi bílar og sjálfsiglandi bátar, þetta var alla vega ekki sjálftalandi ræða vegna þess að þarna var margt vel ígrundað sem ég hafði gaman af að heyra hv. þingmann fara með. Þessi ræða var hugvekja á margan hátt. Kannski þegar fram líða stundir og ef vonir ganga eftir og þetta verður hinn besti heimur allra heima þá munum við ekki endilega skiptast í atvinnuleitendur og atvinnuhafa eða launafólk og atvinnurekendur, það verða ekki slíkar afstæður heldur skiptumst við kannski í þrjá hópa; við verðum vanvirk, við verðum ofvirk og við verðum virk. Og vonandi sem flest okkar virk á einhvern hátt og höfum þannig virk samskipti hvert við annað og greiðum götu hvert annars og greiðum hvert öðru fyrir það sem við framleiðum hvert ofan í annað. Þetta er, ímynda ég mér, einhvers konar útópía sem býr að baki því sem hv. þingmaður var að segja. Eða hvað? Mig langar að fá hugleiðingu frá hv. þingmanni. Mig langar að biðja hv. þingmann um að fara aðeins á flugið.