atvinnuleysistryggingar og greiðslur til íþróttafélaga vegna launakostnaðar og verktakagreiðslna á tímum kórónuveirufaraldurs.
Virðulegi forseti. Uppáhaldssögurnar mínar í kringum þetta eru t.d. um munkana sem mótmæltu prentvél Gutenbergs og sögðu: Við munum missa störfin okkar, að skrifa bækur. Viljum við fara aftur til þess tíma þegar bækur voru handskrifaðar í klaustrum af munkum? Nei. Það voru hafnarverkamenn sem fóru í verkfall þegar gámarnir komu og fengu það í gegn að gámarnir væru settir á bryggjuna. Þeir tóku úr gámnum og röðuðu í næsta gám sem var síðan settur á vöruflutningabíl og keyrður burt. Þetta gekk í einhver tvö ár, minnir mig að sagan segi, þangað til allir sáu að þetta var bölvað rugl. Að sjálfsögðu var gámurinn bara settur beint á flutningabílinn og keyrður burt. Þetta eru dæmi um úreldingar sem eru alltaf að gerast hraðar og hraðar. Já, það verða alltaf til ný störf eins og fólk segir en væntur líftími nýrra starfa er alltaf að styttast. Ég sé t.d. fram á að eftir ekkert endilega svo rosalega langan tíma, ef maður pælir bara í veldisvexti, muni vera gervigreind sem skrifi skáldsögur, teikni upp heilu bíómyndirnar eða búi til tónlist og að meiri hluti þess efnis sem mannveran mun umgangast verði búinn til af einhvers konar gervigreind. Allar nýjungar sem maðurinn mun færa inn í það ferli mun slík gervigreind læra gríðarlega hratt og það mun geta endurspeglast í þeim verkum sem slík tækni býr til. Ég veit ekki hvort þetta telst vera að fara á flug fyrir hv. þingmann sem er einnig rithöfundur. En þetta vekur hann kannski aðeins til umhugsunar um hvert alla vega ég tel að við séum óhjákvæmilega að stefna.