151. löggjafarþing — 109. fundur,  8. júní 2021.

atvinnuleysistryggingar og greiðslur til íþróttafélaga vegna launakostnaðar og verktakagreiðslna á tímum kórónuveirufaraldurs.

775. mál
[18:25]
Horfa

Guðmundur Andri Thorsson (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið og er nú ekki alveg viss um að hér hafi hann teiknað upp þá jákvæðu útópíu sem ég var að vonast eftir heldur var þetta meiri distópía fyrir mér vegna þess að gallinn við gervigreind er sá að gervigreind er gervigreind. Hún er ekki óútreiknanleg, hún er ekki hvatvís og hún er ekki mennsk. Þó að hægt sé að setja inn í hana alls kyns mennska eiginleika þá verður hún ekki mennsk.

Það er eiginlega tvennt sem mig langar að spyrja hv. þingmann sem er náttúrlega erfitt að hugleiða á svo stuttum tíma. Það er annars vegar það sem mér finnst vera kannski stóra málið og varðar það hvernig við förum að því að dreifa gæðunum við sjálfvirknivæðinguna. Ég tel að það sé kannski stóra verkefnið okkar að dreifa gæðunum réttlátlega milli mannkynsins en það falli ekki bara í skaut örfárra risafyrirtækja. Hins vegar hvort hann trúi því að allar breytingar — ég hef áður heyrt hv. þingmann fara með þessar munkasögur og ég hef efasemdir um þær, ég held að þær séu orðum auknar — en trúir hv. þingmaður því að allar breytingar af þessu tagi séu framfarir?