151. löggjafarþing — 109. fundur,  8. júní 2021.

atvinnuleysistryggingar og greiðslur til íþróttafélaga vegna launakostnaðar og verktakagreiðslna á tímum kórónuveirufaraldurs.

775. mál
[18:27]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Nokkrar spurningar. Ef við þekkjum ekki muninn á verkum gervigreindar og mannlegu verki, hvað þá? Er það ekki svipað eins og ef tré fellur í skógi og enginn er nálægt, kemur þá hljóð? Gervigreind getur verið óútreiknanleg, hún getur alveg verið hvatvís. Vissulega er hún ekki mennsk en hún lærir af mönnum og verkum manna. Börn læra af verkum manna. Eru þau þá ekki mennsk ef þau læra ekki af verkum manna? Það fer kannski aðeins of langt út í pælingar. Munurinn þarna er alla vega að ef við greinum ekki muninn, ef við getum ekki bent á eitthvert verk og sagt: Það var tölva sem samdi þetta eða það var maður sem samdi þetta, þá verðum við að spyrja: Er einhver munur? Skiptir máli hvort það sé gervigreind eða mennskt efni?

Að dreifa gæðum í sjálfvirknivæddu umhverfi verður stærsta verkefni framtíðar, tvímælalaust. Þetta er tækifæri til þess að búa til mesta ójöfnuð í sögu jarðarinnar, í mannkynssögunni. Það verður mjög auðvelt að safna auð á skala sem við höfum aldrei séð áður. Þannig að já, þetta verður stærsta verkefnið. Ég hef þá skoðun að aðgengið að því að búa hlutina til sjálfvirkt verði að vera opið, opin og aðgengileg aðkoma að því að allir geti í rauninni framleitt sína hluti sjálfvirkt.

Eru allar breytingar framfarir? Sumar breytingar eru óhjákvæmilegar. Þá verðum við alltaf að glíma við það hvar pyttirnir eru í þeim breytingum. Við verðum að kunna forðast þá. (Forseti hringir.) Það er vissulega hægt að nota allar breytingar til góðs og ills (Forseti hringir.) og við þurfum að passa upp á að það sé alla vega ekki til ills.