atvinnuleysistryggingar og greiðslur til íþróttafélaga vegna launakostnaðar og verktakagreiðslna á tímum kórónuveirufaraldurs.
Herra forseti. Hér hefur verið áhugaverð umræða um þetta mál. Það snýr að því að verið er að framlengja gildistíma eins af aðgerðapökkum ríkisstjórnarinnar, breytingar á lögum um atvinnuleysistryggingar og lögum um greiðslur til íþróttafélaga vegna launakostnaðar og verktakagreiðslna á tímum kórónuveirufaraldursins. Þetta er hluti af aðgerðapökkunum og við í Miðflokknum höfum stutt þá flesta en það verður ekki sagt um ríkisstjórnina að hún hafi stutt mál sem við í Miðflokknum höfum lagt fram, góð mál, breytingartillögur, fullfjármagnaðar o.s.frv. Því hefur öllu verið hafnað af hálfu ríkisstjórnarflokkanna á sama tíma og þeir hafa kallað eftir samstarfi í aðgerðum og samstöðu í aðgerðum vegna veirufaraldursins.
Það er reyndar einn galli á þessu lögum sem voru samþykkt í desember og hér er verið að framlengja að í þeim felst mismunun. Eins og komið hefur fram í ræðum á þetta einungis við um íþróttafélög en ekki æskulýðsfélög. Ég gerði athugasemdir við það þegar þetta frumvarp var til afgreiðslu í þinginu og gerði vel grein fyrir því sem kemur m.a. fram í umsögn frá KFUM og KFUK á Íslandi. Ég sagði þá að frumvarpið sendi slæm skilaboð þegar kemur að æskulýðsfélögunum, æskulýðsstarfi í landinu, vegna þess að verið er að undanskilja það. Þeir styrkir sem verið er að veita úr ríkissjóði ná eingöngu til íþróttafélaga innan Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands. Verið var að koma til móts við þá erfiðleika sem íþróttafélögin hafa glímt við vegna kórónuveirufaraldursins, skiljanlega. Það þurfti að halda uppi starfsemi og greiða laun o.s.frv. en á sama tíma var óheimilt að stunda íþróttastarf. Hins vegar var þarna verið að mismuna félögum eins og KFUM og KFUK sem halda uppi mjög mikilvægu starfi.
Það er mjög slæmt þegar stjórnvöld senda út skilaboð með þessum hætti, um að íþróttastarfið sé eitthvað mikilvægara en æskulýðsstarfið og starfið í skátaheiminum og kristilegt æskulýðsstarf o.s.frv. Það eru slæm skilaboð þegar stjórnvöld eru að draga þessa mikilvægu starfsemi í einhvers konar dilka, ef svo má að orði komast. Þetta bentum við í Miðflokknum á hér þegar frumvarpið var rætt á sínum tíma en á það var ekki hlustað frekar en margt annað, því miður, þegar ríkisstjórnin á í hlut.
Skoðum t.d. aðeins skólana. Skólinn er stofnun sem ætlað er það hlutverk að gera sem flest börn að hæfum fullorðnum einstaklingum til að takast á við verkefni framtíðarinnar. Innan skólanna er líka frístundastarf og þegar skóladegi lýkur fara börn í annars konar félagsstarf o.s.frv., allt gott og gilt og mikilvægt, en skólinn er hins vegar langt frá því að vera eini áhrifavaldurinn í daglegu lífi nemendanna. Sá tími sem nemendur eiga aflögu utan skóla er mun meiri en vikulegur tími þeirra í skólanum og rannsóknir hafa sýnt að tómstundastarf barna og unglinga er mikilvægt fyrir þroska og velgengni nemenda bæði í námi og starfi. Félags- og tómstundastörf eru skipulögð og í umsjón ábyrgra aðila. Þau eru talin hafa jákvæð og uppbyggjandi áhrif, og geta t.d. minnkað líkurnar á áfengis- og vímuefnaneyslu unglinga eða annars konar áhættuhegðun. Sjálfsmynd unglinga er að stórum hluta mótuð í gegnum þátttöku þeirra í félags- og tómstundastarfi og íþróttir og aðrar skipulagðar tómstundir í umsjón ábyrgra aðila eru þarna til þess að byggja krakkana upp og veita þeim jákvæðan innblástur sem er mjög mikilvægt. Síðan hafa rannsóknir sýnt að þetta hefur jákvæð áhrif á börnin þannig að þau lenda síður á glapstigum vímuefnaneyslu.
Ég minntist á KFUM og KFUK vegna þess að þau sendu inn mjög góða umsögn þar sem þau leggja ríka áherslu á að æskulýðsstarfið fái þann styrk sem íþróttahreyfingin fær með þessum lögum. Þau leggja áherslu á að hér sé verið að mismuna og hér sé tækifæri til að leiðrétta þá mismunun og ég tek heils hugar undir það. Ég ætla að vona að ríkisstjórnin hlusti nú aðeins, hún hlustaði ekki í desember þegar við í Miðflokknum bentum á þetta hér. Ég þekki sjálfur æskulýðsstarf KFUM og KFUK á Íslandi. Það er sérstakt að því leyti að félögin einbeita sér að kristilegu starfi meðal barna og unglinga á grunnskólaaldri. Kristilegt æskulýðsstarf skiptir máli fyrir börn og unglinga sem sækja það á hverjum tíma. Krakkarnir koma til KFUM og KFUK vegna þess að þau vilja taka þátt í því sem þar gerist og meðtaka þann boðskap sem er fluttur og vera síðan í skemmtilegum félagsskap. Það kostar að halda úti þessu starfi, það kostar að hafa starfsmenn og aðstöðu og allt þetta kostar.
Margir Íslendingar játa barnatrú og vísa þar til gildis trúarinnar á barnsárum. Trúin frá barnsárunum býr í þeim en óskilgreint er hvað slík trú merkir síðan fyrir þau á fullorðinsárum. En hún skiptir samt máli þótt persónubundin sé. Í erlendum rannsóknum hefur verið skoðað hvað hafi mótað trú eða trúleysi fullorðins fólks. Niðurstöðurnar hafa verið á þann veg að miklu meiri líkur séu á að einstaklingur horfi til þeirra gilda sem hann mótaðist af á barnsárunum.
Það er þörf fyrir tilgangsríkt félagsstarf þar sem barnið í heild sinni, líkami og sál, er virkjað til starfa. Félagsstarf þarf að uppfylla þarfir barna og unglinga og hafi félagsstarfið ekki merkingu fyrir þau þá sækja þau einfaldlega ekki starfið. Það skiptir því miklu máli að þekkja til þjóðfélagsaðstæðna barna og unglinga til að átta sig á því hvað mótar þeirra félagslegu aðstæður og skapa félagsstarf sem svarar þörfum þeirra. Félagsstarf KFUM og KFUK höfðar til margra barna og unglinga í dag og kristilegt æskulýðsstarf á svo sannarlega rétt á sér eins og annað félagsstarf. Það er alltaf þannig að ólíkir hópar sækja mismunandi tómstundastarf og það á að greiða götu þessara hópa og menntamálaráðuneytið hefur gert samninga við fjölda aðila hvað þetta varðar, sem er gott.
Unglingar sem sækja skipulagt tómstundastarf vikulega eða oftar eru að mörgu leyti betur settir en þeir sem ekki sækja slíkt starf. Unglingar í hópíþróttum eru með betra sjálfsálit og sjálfsmynd og minni kvíða- og þunglyndiseinkenni. Það kemur m.a. fram í rannsókn á meistarastigi við Háskóla Íslands eftir Sjöfn Þórarinsdóttur, athyglisverð rannsókn. Ekki reynist munur á kynjunum í hópi þeirra unglinga sem leggja stund á eina eða tvær tegundir skipulagðs tómstundastarfs vikulega eða oftar. Strákar eru líklegri en stelpur til að taka þátt í hópíþróttum og stunda þær oftar. Stelpur eru hins vegar í meiri hluta í kristilegu æskulýðsstarfi.
Aðstæður unglinga á Íslandi eru margvíslegar og það er margt sem mótar og hefur áhrif. Kirkjan er fjarverandi í lífi flestra unglinga strax árið eftir fermingu. Því hefur hún lítil áhrif til mótunar á þeim árum sem unglingar taka barnatrúna svokölluðu til endurmats og leitast við að móta sjálfstæða lífsskoðun og trúarafstöðu. Í fljótu bragði kann okkur að finnast fátt sameiginlegt með kirkjunni og unglingahópi með rapptónlist í eyrum. Áreitið sem unglingarnir verða fyrir virðist óendanlegt, tónlistin, kvikmyndirnar, sjónvarpið, myndböndin í símanum, tölvurnar, samskiptamiðlarnir, jafnaldrarnir, skólarnir, félagsmiðstöðvarnar, íþróttirnar o.s.frv. Þá spyr maður sig: Er kirkjan og kristilegt æskulýðsstarf úr leik í þessu öllu saman? Þeir sem eru í forystu fyrir æskulýðsstarf þurfa ávallt að spyrja sig hvernig best sé að mæta unglingum á þeim mikilvægu mótunarárum sem unglingsárin eru.
Unglingar eru ekki sérstakur þjóðflokkur eða markhópur sem þörf er á að meðhöndla með sérstökum eða sértækum hætti. Unglingar eru fólk sem fyrst og fremst þarf að taka alvarlega og sýna virðingu. Það á ekki eingöngu að líta á þá sem hóp heldur sem einstaklinga sem þarfnast félagsskapar, umhyggju og kærleika eins og aðrir. Unglingar þurfa að finna að þeir séu viðurkenndir og virtir og þeim treyst. Þeir þarfnast þess að á þá sé hlustað og að einhverjir láti sér þykja vænt um þá. Leiðtogar í æskulýðsstarfi eru þess vegna mjög mikilvægir og þá á ekki að undanskilja í þessu frumvarpi. Það er kannski kjarni málsins sem ég ætlaði að koma hér að, þegar ég hef rakið hér aðeins æskulýðsstarf KFUM og KFUK og kirkjunnar. Þess vegna er, eins og kemur greinilega fram í umsögn KFUM og KFUK, ákaflega dapurlegt að hér sé verið að mismuna með þessum lögum með þeim hætti sem hér hefur verið greint frá.
Það er mjög mikilvægt að boðið sé upp á fjölbreytt og vandað íþrótta- og æskulýðsstarf og það er mjög víða í landinu. Það fólk sem sinnir því starfi á svo sannarlega hrós skilið. Margir eru í sjálfboðastarfi en það er ekki hægt að reka svona starf eingöngu á sjálfboðavinnu. Síðan hefur fjárhagslegi grundvöllurinn brostið í faraldrinum og þess vegna er verið að mæta því með lögunum sem er verið að framlengja. Hins vegar hefur gleymst að ekki finna öll börn sig í íþróttum, við megum ekki gleyma því. Fjölmörg þeirra eiga samleið með öðru skipulögðu æskulýðsstarfi. Þar sem íþróttahreyfingin er stór og áberandi aðili þarf oft að minna á það að undir málaflokkinn heyrir einnig skipulagt æskulýðsstarf sem ekki er starfrækt undir formerkjum íþrótta og það er það sem þetta mál snýst um að mínu mati. Gallinn á málinu er að verið er að mismuna þessum hópum og það eru ekki góð skilaboð út í samfélagið og allra síst á þessum tímum. (Forseti hringir.) Ég vænti þess að þessu verði breytt hér og vonast til að nefndin taki það til skoðunar og breyti frumvarpinu í meðförum sínum.