atvinnuleysistryggingar og greiðslur til íþróttafélaga vegna launakostnaðar og verktakagreiðslna á tímum kórónuveirufaraldurs.
Herra forseti. Mig langar að rifja upp atvik frá desember síðastliðnum þegar við vorum hér með til umfjöllunar frumvarp um greiðslur til íþróttafélaga vegna launakostnaðar á tímum kórónuveirufaraldursins sem síðan varð að lögum nr. 155/2020, sem hér er verið að framlengja. Í velferðarnefnd átti sér nefnilega stað sá atburður að nefndin sameinaðist um breytingartillögu sem var frá minni hluta komin og snerist um að greiðslur til íþróttafélaga næðu ekki einungis til fastráðins starfsfólks heldur líka verktaka. Við 2. umr. rak hv. þm. Helga Vala Helgadóttir augun í að það vantaði að tiltaka sérstaklega að styrkirnir næðu til launatengdra gjalda vegna verktaka. Það hefði að óbreyttu haft þau áhrif að þeir fjármunir sem til íþróttafélaganna rynnu stæðu ekki undir sama starfshlutfalli og þeim væri ætlað.
Helga Vala Helgadóttir lagði því fram breytingartillögu í desember um að launatengdu gjöldin væru sérstaklega tiltekin í lögunum. Það sáu allir þingmenn að væri rétt að gera. Þarna væru vankantar á lögunum sem þyrfti að sníða af, en samt var breytingartillagan felld hér í sal. Hún var felld með einhverri skrýtnustu atkvæðaskýringu sem heyrst hefur þar sem þingmenn lýstu því yfir að þeir þökkuðu fyrir breytingartillöguna, sögðu að um þetta mál ríkti full samstaða en að vegna þess að málið væri að fara til nefndar þá hefðu þeir greitt atkvæði gegn breytingartillögunni, vegna þess að það er svo fast inngróið í stjórnarmeirihlutann á köflum að mega ekki samþykkja breytingartillögu ef hún kemur úr vitlausri átt að stundum fella stjórnarliðar breytingartillögu á sama tíma og þeir segjast styðja hana. En þeir átta sig ekki á því að stuðningurinn er ekki bara orð sem við látum frá okkur hér í pontu heldur snýst stuðningur við breytingartillögu um að ýta á já-takkann á borðunum okkar, sem þau gerðu ekki í þessu tilviki.
Velferðarnefnd náði að vinna sig fram úr þessu í desember og skilaði við 3. umr. til þingsins sameiginlegri breytingartillögu sem var efnislega sú sama og hafði verið felld frá Helgu Völu Helgadóttur. Þessu var reddað á síðustu metrunum en ágætt að rifja það upp til að muna hvaða kúltúr ríkir stundum um þessi mál. Tillögur stjórnarandstöðunnar eru felldar hér í sal vegna þess að þær þarf að endurvinna og leggja fram í nafni stjórnarliða til að þær fáist samþykktar.
Þegar stjórnarliðar, í 2. umr. þess máls sem við ræðum hér í dag, felldu tillögu minni hlutans í velferðarnefnd um að heimilt væri að greiða atvinnuleysisbætur til þeirra sem stunda nám, þá vonaði ég að það væri bara til þess að stjórnarliðar gætu lagt eignarhald sitt á tillöguna og lagt hana fram í eigin nafni við 3. umr. Mér þykir verulega miður að slík tillaga hafi ekki litið dagsins ljós vegna þess að ég held að fáar kröfur hafi borist okkur jafn oft, jafn skýrt og jafn vel ígrundaðar og krafa stúdentahreyfingarinnar um það að vinnandi námsfólk geti sótt sér þann rétt sem það hefur áunnið sér með greiðslu atvinnutryggingagjalds ef það fær ekki vinnu í námshléum. Stúdentaráði Háskóla Íslands reiknast til í umsögn sinni við þetta frumvarp að það hafi að baki sjö umsagnir við frumvörp er varða breytingar á lögum um atvinnuleysistryggingar þar sem bent er á akkúrat þetta atriði og sú fyrsta var lögð fram 23. mars 2020. Annan hvern mánuð hafa stúdentar mætt hingað til þingsins nestaðir rökum og gögnum og ekki hlotið áheyrn nema hjá stjórnarandstæðingum sem leggja fram breytingartillögur sem síðan eru felldar af stjórnarliðum.
En af hverju skiptir það máli, forseti? Það skiptir máli vegna þess að framfærslukerfið sem hefur verið smíðað utan um stúdenta hentar þeim ekki. Það hentar þeim ekki vegna þess að 70% íslenskra stúdenta þurfa að vinna með skóla til að framfleyta sér í námi. Það kom fram í Eurostudent-könnuninni í vor. Samhliða því birti stúdentaráð niðurstöður könnunar sem unnin var í samstarfi við mennta- og menningarmálaráðuneytið þar sem kom fram að á landsvísu segjast 28,4% stúdenta glíma við mikla eða mjög mikla fjárhagserfiðleika.
Þetta er ekki heilbrigt kerfi, forseti, þetta er kerfi sem við hefðum átt að laga þegar lög um Menntasjóð námsmanna voru samþykkt fyrir tveimur árum. Þá var búið til skýrara og einfaldara regluverk, skilvirkara kerfi, en það á enn eftir að lagfæra grunnframfærsluna, töfratöluna sem stýrir því hvort stúdentar skrimta eða hafa það ágætt. Enn virðist vera einhver rómantík tengd því að það eigi að vera svolítið erfitt að vera í námi, fólk eigi ekki endilega að hafa það allt of gott. Hvernig getum við annars útskýrt það að tveimur árum eftir að lög um Menntasjóð voru samþykkt er enn ekki búið að hækka grunnframfærslu stúdenta frá þeim 180 þúsundum sem hún er á hverjum mánuði? Hún er 180.000 kr. á hverjum mánuði í níu mánuði á hverju ári vegna þess að námslánakerfið reiknar með því og gerir í raun kröfu til þess að stúdentar afli sér tekna á vinnumarkaði í þrjá mánuði á ári yfir sumartímann. Það er svo sem gott og blessað þegar atvinnuástandið býður upp á það, þegar nóga vinnu er að fá og fólk í námshléum getur fyllt upp í þann kvóta sem Menntasjóðurinn krefst að það fylli upp í til að tryggja framfærslu yfir árið. En þegar atvinnuástandið snöggbreytist, eins og það gerði síðasta sumar, þannig að allur þjónustuiðnaðurinn, ferðaþjónustan, öll þessi árstíðabundnu störf hverfa á einu bretti, sem fólk í námi hleypur kannski oftar í en margir aðrir hópar, er hægara sagt en gert að verða sér úti um þriggja mánaða eigin tekjur yfir sumarmánuðina.
Stúdentaráð og annað talsfólk stúdenta var ekki að gera kröfu um að fá endilega einhverja ölmusu, heldur einfaldlega að sá hópur stúdenta sem horfði fram á mögulegt atvinnuleysi síðasta sumar en hafði greitt tryggingagjald, hafði greitt inn í sjóðinn sem á að verja fólk ef það verður atvinnulaust, gæti sótt þangað atvinnuleysisbætur. Í fullkomnum heimi væri það auðvitað ekki þannig að námslánakerfi og atvinnuleysistryggingakerfi þurfi að vega hvort annað upp, en staðreynd málsins er sú að það hefur ekki tekist að láta þessi tvö kerfi vinna saman. Það á ekki að lenda á herðum stúdenta þegar efnahagsáfall verður á landinu.
Það var ekki orðið við þessari kröfu stúdenta síðasta sumar. Nú ætlar ríkisstjórnin aftur ekki að verða við þessari kröfu stúdenta og vísar sér til varnar í þær aðgerðir sem settar hafa verið af stað til að skapa störf fyrir námsmenn í sumar. Það eru fínar aðgerðir, það er fínt að búa til störf þannig að námsmenn geti jafnvel fundið eitthvað vel við sitt hæfi á sínu fræðasviði og unnið við það í sumar. En krafa stúdenta er bara að til viðbótar við þær aðgerðir njóti einstaklingar sama öryggisnets og allt annað vinnandi fólk í landinu, að fólk sem greiðir í Atvinnuleysistryggingasjóð geti, þegar það fær ekki vinnu, sótt aftur fé úr þeim sjóði.
Á þessa mismunun gagnvart stúdentum sem greiða í sjóðinn hefur verið bent ítrekað síðasta rúma árið. Á það hefur ekki verið hlustað og ég veit ekki alveg hvaða orð er best að nota til að lýsa því hvað mér finnst um það, herra forseti, það skeytingarleysi gagnvart afkomuöryggi stúdenta sem hefur verið sýnt hér ítrekað. Þetta er sorglegt á sama tíma og ríkisstjórnin bendir á að leiðin fram á við sé í gegnum nýsköpun og einhverja framþróun samfélagsins á forsendum menntakerfisins. Um leið hlýtur ríkið að þurfa að axla sína ábyrgð á því að stúdentar geti tryggt framfærslu sína, þannig að fólk flosni ekki úr námi bara vegna þess að það fær ekki vinnu yfir sumarið.
Við erum nú þegar í þeirri stöðu að íslenskir háskólanemar eru eldri en kollegar þeirra annars staðar í Evrópu vegna þess að þeir byrja seinna í háskóla. Þeir taka sér oft námshlé, kannski til að safna pening til að hafa efni á því að fara í háskóla. Þeir eru líka lengur vegna þess að það að vinna með námi tefur oft framgang námsins og þeir hafa meiri ábyrgð en fólk í sömu stöðu annars staðar í Evrópu, (Forseti hringir.) hafa oft fyrir fjölskyldu að sjá, (Forseti hringir.) búnir að fjárfesta í fasteign sem greiða þarf af og mega þess vegna ekki við þeirri ótryggu fjárhagsstöðu sem ríkisstjórnin býður þeim enn og aftur upp á.