atvinnuleysistryggingar og greiðslur til íþróttafélaga vegna launakostnaðar og verktakagreiðslna á tímum kórónuveirufaraldurs.
Hæstv. forseti. Við ræðum um þetta mál þar sem verið er að framlengja aðgerðir vegna faraldursins fyrir ákveðinn hóp, þ.e. íþróttafélög. Við höfum rætt hér í kvöld mikilvægi þess að fleiri komi að borðinu í rauninni, að fleiri fái leiðréttingu eða ákveðna lausn sinna mála. Við höfum því miður ekki fengið mikla umræðu frá stjórnarmeirihlutanum um það. Hins vegar hafa verið viðraðar ákveðnar hugmyndir og það væri vitanlega mjög gott ef hægt væri að bregðast við með einhverjum hætti. Vitanlega er málið komið býsna langt og búið að fella ákveðnar breytingartillögur fyrr í umræðunum og því vafamál að eitthvað annað yrði samþykkt hér. Þó held ég að engum dyljist að þingmenn hafa lýst miklum áhyggjum af bæði stúdentum og æskulýðsfélögunum nokkuð oft, eðlilega, því að það er vont að sjá góða hópa fá enga lausn. Þetta er kannski skringilegt orðalag hjá mér, góða hópa, en það er vont að sjá hópa fólks, hópa úti í samfélaginu sem hafa sóst eftir og sýnt fram á að þeir eiga sannarlega heima undir þessum lögum. Við höfum eðlilega haft áhyggjur af því.
Málið er til bóta eins og margir hafa sagt. Það er algjörlega ljóst að það er til bóta en við höfum ákveðnar skoðanir á því hvort gengið sé nógu langt. Nei, okkur finnst ekki gengið nógu langt en við munum samt styðja málið vegna þess að það er, eins og ég sagði áðan, til bóta fyrir þann hóp sem það nær til. Við hefðum viljað sjá lengra gengið, við hefðum viljað sjá lausnir á málum fleiri hópa en við verðum að bíða með það.
Þingmenn hafa fært ágætisrök fyrir því hvers vegna t.d. námsmenn ættu að vera undir þessum lögum, til að breyta og bæta þeirra lífsafkomu, ef ég má orða það þannig, eyða óvissu og slíkt. Þar af leiðandi vil ég nota tækifærið til að taka undir það. Við skulum taka undir það að námsmenn þurfa að fá ákveðna lausn sinna mála. Hér hafa verið taldar upp ákveðnar aðgerðir sem hefur verið farið í. Þær hafa kannski ekki dugað. Við höfum talað um að verið sé að taka stutt skref en ekki stór og þessi skref þyrftu að vera stærri. Þar af leiðandi, herra forseti, hef ég lagt áherslu á að við þyrftum að finna leiðir sem fyrst til að bregðast við stöðu þessara hópa.
Ég ítreka það sem ég sagði hér fyrr í kvöld: Æskulýðsstarf er mjög mikilvægt, ekki síður en íþróttastarf. Á báðum þessum stöðum er verið að vinna með heilsu og hug fólks, ungs fólks ekki síst, en auðvitað eiga allir að taka þátt í íþróttum og æskulýðsstarfi sem það geta og við eigum að styðja við slíkt að sjálfsögðu, herra forseti.
Ég vonast auðvitað til þess að málið verði samþykkt hér í þinginu en það væri óskandi að einhver úr stjórnarmeirihlutanum hefði komið og talað við okkur um þær breytingar sem við erum að sækjast eftir.