151. löggjafarþing — 109. fundur,  8. júní 2021.

atvinnuleysistryggingar og greiðslur til íþróttafélaga vegna launakostnaðar og verktakagreiðslna á tímum kórónuveirufaraldurs.

775. mál
[20:24]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P) (andsvar):

Herra forseti. Við getum séð hvort ég hafi nógu margar spurningar til að taka tveggja manna andsvör ef forseti er svona rausnarlegur. Mig langar að leggja út af þeirri von sem hv. þingmaður nefndi að skini í gegn í umsögn KFUM og K. Það er nú kannski viðeigandi að vonin sé í þeirra umsögn. En þetta er von sem ætti að vera svo sjálfsögð, vonin um að Alþingi hlusti á rök sem koma fram í umsögnum og breyti málum til betri vegar þegar augljóst er að það þarf að breyta þeim. Svona ætti það náttúrlega að vera á hverjum einasta degi hjá okkur en er það ekki. Eins og þingmaðurinn bendir á er í þessum lögum fordæmi um að Alþingi hlusti meira en venjulega þegar velferðarnefnd áttaði sig á því undir lok síðasta árs sem kom fram í umsögnum, að vegna þess hversu fjölbreytt ráðningarsamband eða starfssamband væri á milli einstaklinga og íþróttafélaga þyrfti að taka tillit til verktakagreiðslna sem ekki kom fram í upprunalegu frumvarpi. Svo var einn þingmaður í nefndinni sem áttaði sig aðeins seinna á að þá þyrfti að hugsa fyrir launatengdu gjöldunum sérstaklega af því að annars væri verið að skerða styrkina til félaganna. Þar fyllist ég nefnilega smá vonleysi vegna þess að sú tillaga var felld hér í þingsal af þingmönnum stjórnarliðsins sem komu í pontu og sögðust styðja breytingartillöguna, auðvitað þyrfti að laga þetta, en ýttu síðan á rauða takkann á borðinu því að þeir áttuðu sig ekki á því að það þyrftu að vera tengsl á milli þess sem maður segir og þess sem maður gerir.

Nú höfum við séð það sem KFUM og K segir, það kom fram í umsögnum, og nú höfum við séð tillögu falla í atkvæðagreiðslu um að bæta námsmönnum við. Mig langar því að spyrja þingmanninn: Er einhver von í sjónmáli?