atvinnuleysistryggingar og greiðslur til íþróttafélaga vegna launakostnaðar og verktakagreiðslna á tímum kórónuveirufaraldurs.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Það er því miður oft þannig í þessum sal að það fer ekki alveg saman hljóð og mynd. Þó að það séu auðvitað vonbrigði þegar stjórnarliðar koma hingað upp hver á fætur öðrum og lýsa yfir stuðningi við ákveðin sjónarmið eða ákveðið efni en labba síðan í sæti sitt og fella þá nefndartillögu þá er það því miður ekki alveg óviðbúið. Við höfum séð það ótal sinnum. En eins og ég tel líklegt að hv. þingmaður hafi gert sjálfur studdi ég þá tillögu sem lögð var fram um að hækka matshlutfallið úr 70% í 90%. Það var fellt af stjórnarliðunum. Ég veit ekki hvort stjórnarliðum hafi þótt þeir hafa gefið nóg eftir á þeim tímapunkti hvað lagfæringar á málinu varðar í nefndinni, þeir verða að útskýra það sjálfir. En ef við reynum að átta okkur á voninni sem skín í gegn í umsögn KFUM og K þá hafði það gerst í þessu tiltekna máli að það hafði lagast verulega í nefndarstörfum þannig að í rauninni varð umbylting á því. Það er því skiljanlegt að þeir sem skrifuðu umsögn fyrir hönd KFUM og K hafi talið líkur á því að hlustað yrði á skynsamlega og kurteisislega fram setta ábendingu um að fleiri væru í verulega snúinni stöðu í gegnum þennan faraldur en íþróttafélögin — sem betur fer var komið myndarlega til móts við þau. Mér finnst skiljanlegt að slík félagasamtök hafi borið von í brjósti um að á þessi sjónarmið yrði hlustað. En svo var þetta auðvitað kolfellt hér í salnum, eins og við þekkjum.