atvinnuleysistryggingar og greiðslur til íþróttafélaga vegna launakostnaðar og verktakagreiðslna á tímum kórónuveirufaraldurs.
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Andrési Inga Jónssyni seinna andsvarið. Fyrst aðeins varðandi þetta með verkaskiptingu ráðuneyta. Það vakti töluverða athygli og undran þegar mælt var fyrir frumvarpinu, undanfara þessa máls, þ.e. frumvarpinu þar sem nú er verið að framlengja í meginatriðum efnisatriðin og bæta við tilteknum klásúlum. Þann 3. desember sl. mælti félagsmálaráðherra fyrir því frumvarpi sem nú er verið að framlengja hér í salnum. Þar sagði hæstv. ráðherra í ræðu, með leyfi forseta:
„Mikilvægt er að þetta frumvarp sé skoðað í því ljósi að það er eitt púsl í þeirri mynd sem við komum með núna gagnvart íþróttunum. Menntamálaráðherra mun óska eftir því við þingið að fá samþykkta heimild til þess að auka það fjármagn sem úthlutað verður í gegnum þessa tekjufallsstyrki og það kemur væntanlega til afgreiðslu í gegnum fjárlög og vonandi verður það samþykkt.“
Og áfram heldur ráðherrann:
„Ég fór yfir það í fyrri ræðu minni hvers vegna verktakagreiðslurnar eru ekki inni í frumvarpinu núna, hver rökin voru fyrir því og hvaðan þær breytingar komu […] Við tökum hins vegar frá fjármagn sem verður líka beðið um í þinginu, til að mæta verktakagreiðslum sem er u.þ.b. sama fjárhæð og gert er ráð fyrir að þetta frumvarp kosti.“
Síðan segir ráðherrann, með leyfi forseta:
„Af því að menn velta fyrir sér gagnsæinu á slíkri úthlutun þá reikna ég með því að það verði eitt af því sem menntamálaráðherra mun útlista þegar þingið ákveður að veita henni heimild til að setja fé til þess verkefnis.“
Það mátti því lesa í gegnum alla þessa umræðu að reiknað væri með þessari verkaskiptingu sem síðan var allt í einu slegin af gagnvart málinu og allt sett í gegnum Vinnumálastofnun. Og til að hnykkja á því kemur hæstv. félagsmálaráðherra í andsvar við mig 3. desember og segir, með leyfi forseta:
„… var ákveðið að gera breytingar, að leggja frumvarpið fram með þeim hætti hér að það fjármagn sem ætlað væri til verktakagreiðslna færi í sérstakan sjóð sem greitt væri út úr af hálfu menntamálaráðherra.“
Þessi sjóður var auðvitað aldrei stofnaður en þessi skipting verka er í máli eins og þessu alveg örugglega til þess fallin að draga úr skýrleika og áherslunni sem hver ráðherra fyrir sig getur haft á sitt svið, ef svo má segja. Þarna virðist hafa verið tekin ákvörðun um að menntamálaráðherra yrði kippt út úr myndinni en félagsmálaráðherra héldi á málinu að fullu.