151. löggjafarþing — 109. fundur,  8. júní 2021.

atvinnuleysistryggingar og greiðslur til íþróttafélaga vegna launakostnaðar og verktakagreiðslna á tímum kórónuveirufaraldurs.

775. mál
[20:34]
Horfa

Ólafur Ísleifsson (M):

Herra forseti. Við erum að ræða frumvarp um breytingu á lögum um atvinnuleysistryggingar og síðan sömuleiðis um fyrirhugaðar breytingar á lögum um greiðslur til íþróttafélaga vegna launakostnaðar og verktakagreiðslna á tímum kórónuveirufaraldurs. Ég vil í upphafi máls míns ítreka og undirstrika það sem ég sagði í minni fyrri ræðu að það er alveg nauðsynlegt að lagfæra þetta mál að því leytinu til að íþrótta- og æskulýðsfélögum sé ekki mismunað með þeim hætti sem til að mynda kemur fram í mjög góðri umsögn frá KFUM og KFUK, sem í hnotskurn felst í því að lögin nái eingöngu til íþróttafélaga innan Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands. Í umsögninni frá KFUM og KFUK er rakið að lína hafi verið dregin þvert yfir málaflokkinn íþrótta- og æskulýðsstarf, björgunarhring kastað til þeirra félaga sem skilgreina sig sem íþróttafélög meðan hin hafi troðið marvaðann. Eins og þarna kemur fram, herra forseti, felst náttúrlega í þessu, eins og það er orðað í umsögninni, óþolandi mismunun. Auðvitað er nauðsynlegt að úr þessu verði bætt.

Herra forseti. Það er rakið að þessum lögum væri réttilega breytt með því að þeirrar fyrirgreiðslu njóti ekki bara félög innan vébanda Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands, sem að sjálfsögðu eru allra góðra gjalda verð og mjög gott að þeim sé sýndur þessi skilningur og stuðningur. En tillagan af hálfu KFUM og KFUK er sú að við þetta, þ.e. lögaðila innan vébanda Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands, bætist Bandalag íslenskra skáta, KFUM og KFUK á Íslandi og önnur samtök sem hafa í nafni íþrótta- og æskulýðsstarfs þjónustusamning við mennta- og menningarmálaráðuneytið. Það er rakið í þessari umsögn að fjöldi þeirra samtaka sem hafa slíkan formlegan samning við mennta- og menningarmálaráðuneytið í nafni íþrótta- og æskulýðsstarfs er takmarkaður og vel skilgreindur. Með þeirri breytingu sem gerð er tillaga um, og er auðvitað réttlætis- og sanngirnismál, er því ekki verið að opna á neinar óskilgreindar flóðgáttir fjár úr ríkissjóði.

Þá vil ég, herra forseti, vekja athygli á umsögn stúdentaráðs Háskóla Íslands sem felur í sér þá einföldu kröfu, eins og segir í umsögninni, „að allt vinnandi námsfólk geti sótt sér þann rétt sem þeir hafa áunnið sér með greiðslu atvinnutryggingagjalds, samkvæmt 3. gr. laga um tryggingagjald, sem launagreiðendur greiða af launum þeirra, til jafns við annað vinnandi fólk og án þess að vera mismunað fyrir að stunda nám“. Þetta er nú hógvær ósk og málefnaleg, herra forseti, og það er von mín að stjórnvöld leggi við hlustir og bæti úr þessu, bæði hvað varðar æskulýðsfélögin og stúdentana, að þessum aðilum verði ekki mismunað.