atvinnuleysistryggingar og greiðslur til íþróttafélaga vegna launakostnaðar og verktakagreiðslna á tímum kórónuveirufaraldurs.
Hæstv. forseti. Við erum sem fyrr að ræða mál um atvinnuleysistryggingar og greiðslur íþróttafélaga vegna launakostnaðar og verktakagreiðslna á tímum heimsfaraldurs. Ég var í ræðu áðan og ræðutíminn entist ekki af því að ég var að tala út frá umsögnum sem mér fannst athyglisverðar. Ég benti á að það þyrfti að taka tillit til þess að það væru fleiri störf, æskulýðsstörf, minntist á KFUM og KFUK, skátana, atvinnuvanda námsfólks og annað sem þyrfti að taka tillit til í þessu sambandi.
Ég er með umsögn frá ASÍ þar sem fram kemur, með leyfi forseta:
„Hvað varðar efni frumvarpsins þá er ASÍ sammála markmiðum þess og gerir ekki einstakar efnislegar athugasemdir en hvað varðar málefnin í víðara samhengi um úrræði stjórnvalda þá er vakin sérstök athygli á tvennu.
Tekið er undir með þeim sjónarmiðum sem fram hafa komið hjá ýmsum aðilum í æskulýðsstarfsemi að þeirra tjóni hafi ekki verið mætt nema að litlum hluta til og ef til vill hnígi sanngirnisrök til þess að slík félög ætti að meðhöndla með sama hætti og íþróttafélög samanber lög nr. 155/2020. Öll æskulýðsstarfsemi er mikilvæg, sérstaklega fyrir börn og ungmenni. Tryggja verður að tjón þeirra mikilvægu starfsemi verði ekki það mikið að efnahagsleg áhrif sem urðu til í kórónuveirufaraldrinum hamli starfseminni til lengri tíma.
Nú þegar hlutabótaleiðin fer að líða undir lok vill ASÍ vekja athygli á stöðu einstaklinga sem hafa fengið greiðslur þaðan um lengri eða skemmri tíma. Umræddir einstaklingar munu að óbreyttu búa við þá stöðu að eiga skertan rétt til bæði orlofslauna sem og orlofsuppbótar sem kveðið er á um í kjarasamningum að atvinnurekendur skuli greiða þeim sem starfa hjá sér, þó í hlutfalli við starfshlutfall á sl. 12 mánuðum. Full orlofsuppbót launafólks á almennum vinnumarkaði árið 2021 er 52.000 kr. Alþýðusamband Íslands lýsir áhyggjum sínum yfir þeim einstaklingum sem njóta að einhverju leyti skerts orlofsréttar samanber framangreint. Viðbúið er að slíkt geti haft mjög slæmar fjárhagslegar afleiðingar fyrir marga enda orlofstaka hluti af sjálfsögðum rétti launafólks sem þarf til að mynda að mæta leikskólalokunum og slíku. Í þessu samhengi er líka rétt að hafa hugfast mikilvægi orlofstöku fyrir bæði einstaklinga og atvinnulíf. Hvað það varðar má vísa í markmið og þau almennu sjónarmið sem búa að baki laga nr. 30/1987 um orlof. ASÍ telur mikilvægt að stjórnvöld bæti þeim einstaklingum fyrirhugaða tekjuskerðingu vegna komandi orlofstökutímabils […]“
Þetta er úr umsögn sem send var inn vegna þessa máls og sýnir að þetta annars ágæta mál hefði þurft að skoða frá víðara sjónarhorni.
Hér er breytingartillaga frá einstaklingum úr minni hlutanum sem er algerlega hægt að taka undir og ég er alveg sammála því sem þar kemur fram. En það er líka meira sem hefði, eins og kom fram í umsögnum, mátt taka tillit til og hefði verið gott að geta orðið við en þetta mál er komið það langt, það er núna til 3. umr., að það er kannski ekki hægt að bregðast við því akkúrat núna. En það þarf að hafa það í huga fyrr en varir.