151. löggjafarþing — 109. fundur,  8. júní 2021.

fasteignalán til neytenda.

791. mál
[20:45]
Horfa

Frsm. meiri hluta efh.- og viðskn. (Brynjar Níelsson) (S):

Hæstv. forseti. Ég mæli hér fyrir nefndaráliti meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar um frumvarp til laga um breytingu á lögum um fasteignalán til neytenda, nr. 118/2016.

Nefndin fjallaði um málið og bárust umsagnir frá Hagsmunasamtökum heimilanna, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, Samtökum fjármálafyrirtækja og Seðlabanka Íslands og komu fulltrúar frá þessum aðilum á fund nefndarinnar ásamt fulltrúum frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu.

Með frumvarpinu er lagt til að þau mörk sem gilda um hámark lána og greiðslubyrði þeirra sem hlutfall af tekjum verði skilgreind nánar auk þess sem lagt er til að bætt verði við ákvæði um heimild Seðlabankans til að skilgreina undanþágur frá hámörkunum vegna ákveðins hundraðshluta af heildarfjárhæð veittra lána á tilteknu tímabili. Með samþykkt frumvarpsins verður betur tryggt að Seðlabanki Íslands hafi tiltæk nauðsynleg tæki til að styðja fjármálastöðugleika og draga úr alvarlegum röskunum í fjármálakerfinu.

Í umsögn frá Samtökum fjármálafyrirtækja, sem meiri hluti nefndarinnar tekur undir, kemur fram að mikilvægt sé, þegar breytingar eru gerðar á skilyrðum við lánveitingar, að þær séu kynntar vel fyrir neytendum áður en þær ganga í gildi. Gæta þurfi þess, verði þessum stjórntækjum beitt, að lánveitendur fái svigrúm til að breyta kerfum sínum og að þeir fasteignakaupendur sem þegar hafa hafið kaupferli og fengið greiðslumat verði ekki fyrir íþyngjandi áhrifum vegna hertra skilyrða.

Meiri hlutinn leggur til að frumvarpið verði samþykkt. Undir nefndarálitið rita, auk þess sem hér stendur, Óli Björn Kárason formaður, Jón Steindór Valdimarsson, Bryndís Haraldsdóttir, Ólafur Þór Gunnarsson og Þórarinn Ingi Pétursson. Ágúst Ólafur Ágústsson var fjarverandi við afgreiðslu málsins.