151. löggjafarþing — 109. fundur,  8. júní 2021.

fasteignalán til neytenda.

791. mál
[21:03]
Horfa

Frsm. meiri hluta efh.- og viðskn. (Brynjar Níelsson) (S) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég tel mig knúinn til að koma hér í andsvar, þó að það sé varla hægt að kalla það andsvar. Af því að hv. þm. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson hrósaði mér svo mikið vil ég nota tækifærið og hrósa honum líka. Ég er mjög ánægður með að Miðflokkurinn tali fyrir frelsinu, kannski meira en hann hefur gert áður. Það er alveg rétt sem hv. þingmaður segir, vandinn er sá að í þessu húsi erum við mjög oft að takmarka frelsi fólks út frá skoðunum okkar, hvernig okkur finnst að fólki eigi að haga sér. Við höfum gengið allt of langt í því, það er alveg hárrétt, og við erum alltaf að þessu af því að við viljum hafa vit fyrir fólki. En í þessu tilviki erum við brennd. Við áttum okkur á því hvaða áhrif það getur haft ef svona lánastarfsemi fer úr böndunum, og ekki bara á Ísland heldur á allan heiminn. Spurningin er: Er verið að ganga of langt hér, í þessu frumvarpi? Ég er ekki alveg viss um það. Hér er mikið lagt upp úr því að það séu svo miklir almannahagsmunir að stöðugleiki ríki á fjármálamörkuðum.

En erum við að ganga of langt? Það má vel vera. Erum við að takmarka frelsið of mikið? Hugsunin í þessu, hv. þingmaður, er sú að hér geti svo miklir almannahagsmunir verið undir að ef þetta frelsi fer úr böndunum þá skaðar það ekki bara fjármálafyrirtækið og lántaka heldur allt samfélagið. Það er í þeim tilvikum sem ég get sætt mig við einhvers konar takmarkanir. En það er hárrétt, við erum alltaf að gera þetta án þess að slíkir hagsmunir séu undir.