151. löggjafarþing — 109. fundur,  8. júní 2021.

raforkulög og stofnun Landsnets hf.

628. mál
[21:54]
Horfa

Frsm. meiri hluta atvinnuvn. (Njáll Trausti Friðbertsson) (S) (andsvar):

Herra forseti. Það kemur einmitt fram í nefndarálitinu frá meiri hluta atvinnuveganefndar hverjir komu fyrir nefndina. Ég get þá bara lesið það hér til að menn átti sig á umfangi þess samráðs sem var haft í málinu. Það kemur bara fram.

„Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Ingva Má Pálsson frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti, Silju Rán Sigurðardóttur frá Orkustofnun, Kristínu Lindu Árnadóttur og Rafnar Lárusson frá Landsvirkjun, Guðlaugu Sigurðardóttur og Guðmund Inga Ásmundsson frá Landsneti, Tryggva Þór Haraldsson frá RARIK, Júlíus J. Jónsson frá Ráðgjafaráði veitufyrirtækja, Baldur Dýrfjörð frá Samorku, Katrínu Maríu Andrésdóttur og Gunnar Þorgeirsson frá Sambandi garðyrkjubænda, Gunnlaug Karlsson og Eymund Sigurðsson frá Sölufélagi garðyrkjumanna, Lárus M. K. Ólafsson og Sigríði Mogensen frá Samtökum iðnaðarins, Eddu Sif Aradóttur frá Carbfix ohf., Magnús Óskarsson, Dirk Nuberg og Silviu Delgado del Saz frá Climeworks AG, Sigrúnu Helgadóttur, Guðrúnu Finnsdóttur og Pál Ólafsson frá Norðuráli, Elínu Smáradóttur, Berglindi Rán Ólafsdóttur og Þránd Sigurjón Ólafsson frá Orku náttúrunnar, Halldór Oddsson frá Alþýðusambandi Íslands, Vigdísi Häsler og Kára Gautason frá Bændasamtökum Íslands, Breka Karlsson og Einar Bjarna Einarsson frá Neytendasamtökunum, Guðjón Bragason og Valgerði Rún Benediktsdóttur frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, Jón Pál Hreinsson og Björgu Ágústsdóttur frá Sambandi sveitarfélaga á köldum svæðum, Gest Pétursson frá Veitum ohf., Bjarna Frey Bjarnason, Írisi Lind Sæmundsdóttur og Jóhannes Þorleiksson frá Orkuveitu Reykjavíkur og Kristján Þórð Snæbjarnarson og Elsu Maríu Rögnvaldsdóttur frá Rafiðnaðarsambandi Íslands.“

Síðan get ég talið upp umsagnir við málið. Það er bara ekki rétt að ekki hafi verið haft mikið samráð við umsagnaraðila og gesti sem komu fyrir nefndina í þessu máli. Það er búið að taka efnislega mjög vel á þessu máli. Það kemur hins vegar fram í nefndarálitinu að það eru stór álitaefni í þessu máli sem taka þarf afstöðu til. Það er aldrei hægt að hafa alla 100% sátta vegna þess að það sem fjallað er um í málinu eru mismunandi hagsmunir. Stundum þarf bara að taka ákvarðanir um hvernig eigi að standa að málum.