raforkulög og stofnun Landsnets hf.
Herra forseti. Ég mæli hér fyrir áliti minni hluta atvinnuveganefndar vegna þessa máls sem er frumvarp til laga um breytingu á raforkulögum, nr. 65/2003, og lögum um stofnun Landsnets hf., nr. 75/2004.
Herra forseti. Orðið viðamikill hefur heyrst hérna nokkrum sinnum. Þetta mál er að sönnu mjög stórt mál en það kom seint fram. Það er afgreitt í flýti. Það hefur ekki verið sýnt fram á að málið sé brýnt. Það hefur ekki verið sýnt fram á að nauðsyn beri til að afgreiða það á tiltölulega skömmum tíma, nú á vorþingi, í stað þess að taka góðan tíma til að ígrunda vandlega ýmis álitamál sem uppi eru í því. Þetta mál einkennist af miklum flækjum, það eru verkfræðilegar flækjur, það eru fjármálalegar flækjur, og meiri hlutinn kýs að afgreiða það í eins konar skyndingu hérna. Það er alveg sama hvaða sjálfhælni er borin á borð af hálfu hv. framsögumanns málsins, það breytir ekki því að þetta mál hefði þurft að vinnast miklu betur og hefði auðvitað átt að afgreiða þannig að hv. atvinnuveganefnd stæði að því sem einn maður. Það eru ekki nein þannig stjórnmálaleg álitaefni í því, þetta eru mest tæknileg álitaefni sem eru hérna en meiri hlutanum tekst ekki að fá einn einasta fulltrúa úr minni hlutanum með sér á sitt álit. Ræða hv. framsögumanns rétt eins og álit meiri hlutans er samfelldur rökstuðningur fyrir því hvað þetta mál er ófullburða og hvað það vantar mikið upp á að það sé fullunnið.
Ég get nefnt hérna nokkur dæmi, eins og við gerum í áliti minni hluta. Það álit felur í sér upptalningu á bara nokkrum atriðum sem eru afgreidd með ófullnægjandi hætti. Sá listi er ekki tæmandi í áliti minni hlutans heldur eru þessi atriði nefnd í dæmaskyni til að varpa ljósi á það hvað málið er í raun og sanni komið skammt á veg.
Það má nefna, herra forseti, að það er vikist undan því að skilgreina hugtakið raforkuöryggi með fullnægjandi hætti, eins og er rakið í áliti meiri hlutans og í ítarlegri ræðu hv. framsögumanns. Þetta er gert þrátt fyrir að fyrir liggi eindregnar ábendingar um að slíkt skuli gert í lögunum eins og minni hlutinn telur rétt að gera.
Minni hlutinn telur jafnframt að of snemma sé farið af stað með frumvarpið í ljósi þess að það stendur yfir vinna við mjög mikilvægt málefni sem er breytingar á tiltekinni reglugerð nr. 129/2016, um mat á lykilhugtaki í fjármálalegu tilliti. Það er hinn svokallaði vegni fjármagnskostnaður. Hann snertir atriði sem eru mjög þýðingarmikil fyrir rekstur þessara fyrirtækja og samskipti þeirra við yfirvöld.
Svo ég haldi áfram að nefna dæmi þá er þarna það nýmæli að Orkustofnun verði veitt heimild til að hafa eftirlit með fjárfestingaráætlunum dreifiveitna og við teljum í minni hlutanum að það hafi ekki verið tekið með fullnægjandi hætti á ábendingum um þetta efni. Það væri hægt að hafa þennan lista miklu lengri, herra forseti.
Að framangreindu virtu, eins og við orðum það í álitinu, þá leggur minni hlutinn til að málinu verði vísað til ríkisstjórnarinnar, herra forseti. Þar á þetta mál heima. Það á bara að vinna þetta mál ósköp einfaldlega betur og ljúka þeim viðfangsefnum sem eru þarna. Það er til að mynda nefnt í áliti meiri hluta og í ræðu hv. framsögumanns að það sé ýmislegt þarna sem þurfi að huga að. Það er vikið að nefndarstörfum sem enn eru í gangi og hafa grundvallarþýðingu fyrir málið. Það er vikið að málum sem hefði þurft að taka á með skýrum hætti í lögunum en er vísað til ráðherra þannig að hann eigi að hafa þessi atriði í reglugerð.
Við sem skipum minni hlutann, við hv. þm. Sigurður Páll Jónsson sem hér talaði áðan, teljum að þetta sé dæmi um mál sem er á ábyrgð meiri hlutans. Það er á ábyrgð meiri hlutans, herra forseti, að þegar kemur að grundvallarmálum sem hafa grundvallarþýðingu fyrir efnahags- og atvinnulíf þjóðarinnar, eins og raforkumálin, við erum að tala um raforkulög, það er á ábyrgð meiri hlutans hverju sinni að unnið sé að breytingum á slíkum lögum með vönduðum hætti en ekki skilinn eftir fjöldi álitamála. Ég ítreka að það hefði verið rétt að skjóta þessu máli á frest og þess vegna er okkar tillaga að frumvarpinu verði vísað til ríkisstjórnarinnar.