raforkulög og stofnun Landsnets hf.
Herra forseti. Mig langaði bara rétt að koma aðeins í andsvör. Ég er ósammála því að málið sé illa reifað og illa unnið í nefndinni. Það hefur farið fram mikil vinna í tengslum við málið enda held ég að tíu síðna álit meiri hluta atvinnuveganefndar sýni að mikil vinna hefur verið lögð í það undanfarna mánuði. Mig langaði bara rétt að koma hér upp og benda á og taka undir það að raforka er forsenda byggðar á Íslandi í stóru myndinni. Það er hvergi í heiminum framleidd meiri raforka á hvert mannsbarn og hér. Við framleiðum ein 56 MW á ári á hvert mannsbarn, helmingi meira en í landinu í öðru sæti, sem er Noregur. Þjóðirnar í þriðja og fjórða sæti eru að framleiða um 25–30% af því sem er framleitt hér. Þetta er grundvallarforsenda fyrir samkeppnishæfni þjóðarinnar í öllu samhengi hlutanna.
Svo langar mig að koma inn á og ég tek alveg undir það að auðvitað hefði maður viljað, eins og með dreifiveiturnar og uppbyggingu þeirra, að það hefði komið fyrr til að við hefðum lagt streng. Það er þó þannig að eftir óveðrin 1991 og 1995 var farið í stórfellt átak í að koma strengjum í jörð í dreifiveitum landsins, sérstaklega hjá Rarik, þannig að nú er svo komið að 70% af erfiðasta hluta kerfisins, eins og það var skilgreint 1995, eru komin í strengi í jörðu. Þess vegna er líka svo mikilvægt að hafa í huga hvað hefði eiginlega gerst í desember 2019 ef ekki hefði verið búið að vinna í því í 30 ár, 35 ár, að koma öllu þessu niður. Áætlunin var sú að þessu yrði lokið 2035. Nú er búið að flýta þessu ferli. Það gerðist í framhaldi af desemberveðrinu 2019 og nú er talað um að þessu verði að mestu lokið fyrir árslok 2025. Ég tek undir það með hv. þingmanni að raforkumál á Íslandi eru algjört grundvallaröryggismál, þjóðaröryggismál, og almennt grundvöllur fyrir samkeppni landsins að við búum hér við þau kjör sem við þó búum við sem eru með þeim allra bestu sem gerist í heiminum.