151. löggjafarþing — 109. fundur,  8. júní 2021.

raforkulög og stofnun Landsnets hf.

628. mál
[22:14]
Horfa

Frsm. meiri hluta atvinnuvn. (Njáll Trausti Friðbertsson) (S) (andsvar):

Herra forseti. Ég get vel tekið undir þau sjónarmið sem hv. þingmaður reifaði varðandi þessi mál. Auðvitað hefði maður viljað sjá þetta gerast fyrr. En ýmislegt hefur verið gert og búið að vera mikið átak núna eftir desemberveðrið 2019. Þá var farið í mikið átak á vegum Rarik í fyrrasumar og það er mikið í gangi núna í þessu.

Mig langaði rétt að koma inn á það, sem er náttúrlega svolítið innleggið inn í umræðuna og skiptir miklu máli varðandi þá framtíð sem snýr að grænum atvinnuvegum á Íslandi, að nýta þessa grænu orku sem við höfum, auðlindarstraumana frá virkjununum, í loftslagsmálin. Það er risastórt og mikilvægt mál og þar eru gríðarlegir möguleikar og ég held að við eigum aldrei að vanmeta þá því að ég held að í loftslagsmálunum þá verði það í rauninni markaðslögmálin sem munu hjálpa okkur mest. Þetta er miklu stærra mál heldur en að allir bílar á Íslandi verði keyrandi á rafmagni, sem ég er áhugamaður um og vil endilega nota innlenda orkugjafa og spara þannig 30–40 milljarða í innkaupum á olíu á ári, það er umhverfismál. En það sem við erum að fást við þarna eru þeir möguleikar sem við eigum varðandi græna orku, fjórðu iðnbyltinguna. Fjórða iðnbyltingin byggist á grænni orku og öflugum fjarskiptum og hvaða annað land á aðra eins möguleika og við höfum? Þegar ég sat í orkustefnunefndinni var þrennt sem ég lagði mesta áherslu á: Það er að efla flutningskerfi raforku, stóra kerfið okkar sem laskaðist mikið í desember 2019. Það var í fyrsta skipti sem við sáum alvarlegar bilanir tengdar því. Það er samkeppnishæfni landsins og síðan samspil vindorku með ákveðnum hætti, hafa vindmyllurnar ekki út um allt heldur frekar fleiri á afmörkuðum svæðum, og spila á móti vatnsaflinu í landinu. Það er græn stefna og það er alvöruframlag íslenskrar þjóðar og samfélags inn í loftslagsmálin að nýta þetta saman í stóra samhenginu. Þarna eigum við alla hina stóru möguleika. Þetta frumvarp er bara hluti af innleggi inn í alla þá umræðu.