151. löggjafarþing — 109. fundur,  8. júní 2021.

raforkulög og stofnun Landsnets hf.

628. mál
[22:16]
Horfa

Sigurður Páll Jónsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég vil bara nota seinni ræðu mína í andsvörum til að taka algjörlega undir það með hv. þm. Njáli Trausta Friðbertssyni að okkur hefur að mörgu leyti gengið mjög vel, en mér finnst þetta hafa gengið of hægt og þingmaðurinn er alveg sammála því. En við eigum mikla framtíðarmöguleika, framtíðin er björt. En við hefðum mátt standa okkur betur og ég heyri að við erum alveg sammála um það. (NTF: Það má alltaf standa sig betur.) Já, það má alltaf standa sig betur. En af því að ég er í stjórnarandstöðu verð ég líka að setja út á meiri hlutann í þessu máli.