151. löggjafarþing — 109. fundur,  8. júní 2021.

pakkaferðir og samtengd ferðatilhögun.

752. mál
[22:18]
Horfa

Frsm. atvinnuvn. (Lilja Rafney Magnúsdóttir) (Vg):

Herra forseti. Ég mæli hér fyrir nefndaráliti með breytingartillögu um frumvarp til laga um breytingu á lögum um pakkaferðir og samtengda ferðatilhögun. Nefndin fékk fjölda gesta á sinn fund.

Með frumvarpinu er lagt til að stofnaður verði nýr sjóður, Ferðatryggingasjóður, sem hafi það hlutverk að tryggja hagsmuni ferðamanna sem keypt hafa pakkaferð eða samtengda ferðatilhögun sem ekki er framkvæmd í samræmi við samning vegna ógjaldfærni eða gjaldþrots seljanda. Sjóðurinn, sem verði sjálfseignarstofnun, komi í stað þess tryggingakerfis sem rekið hefur verið að mestu óbreytt um áratugaskeið. Starfsemin verði fjármögnuð af tryggingarskyldum aðilum sem eru ferðaskrifstofur sem selja pakkaferðir og samtengda ferðatilhögun og eru leyfisskyldar samkvæmt lögum um Ferðamálastofu, annars vegar með greiðslu iðgjalda og hins vegar með því að leggja fram tryggingu líkt og hingað til. Um efni og markmið frumvarpsins að öðru leyti vísast til greinargerðar með því.

Það var yfirleitt almenn ánægja í umsögnum um efni frumvarpsins. Samtök ferðaþjónustunnar telja að verði frumvarpið samþykkt skili það bæði aukinni neytendavernd og bættum rekstrarskilyrðum fyrir ferðaskrifstofur þar sem fjárbinding vegna trygginga minnki umtalsvert.

Ef ég vík að breytingartillögum nefndarinnar þá er í 1. mgr. 3. gr. frumvarpsins kveðið á um skylduaðild seljenda pakkaferða og samtengdrar ferðatilhögunar sem eru leyfisskyldir samkvæmt lögum um Ferðamálastofu að Ferðatryggingasjóði. Greiða skuli árlegt iðgjald með gjalddaga 1. september. Þó verði gjalddagi þessa árs 1. október samkvæmt ákvæði til bráðabirgða. Þá er í ákvæði til bráðabirgða fyrrgreindum aðilum gert að sækja um aðild að sjóðnum og greiða stofngjald eigi síðar en 1. júlí 2021. Sjóðurinn verði því stofnaður með eingreiðslu allra ferðaskrifstofa sem starfandi voru á árinu 2019. Skuli eingreiðslan nema 1,5% af reiknaðri tryggingarfjárhæð hvers aðila miðað við sölu pakkaferða fyrir það ár.

Við meðferð málsins fyrir nefndinni kom fram það sjónarmið að íþyngjandi væri fyrir ferðaskrifstofur að miða umsóknarfrest um aðild að Ferðatryggingasjóði við 1. júlí 2021. Þá væri háannatími í ferðaþjónustu og auk þess mjög skammur tími til gagnasöfnunar yrði frumvarpið samþykkt í byrjun júnímánaðar. Þá benda Samtök ferðaþjónustunnar í umsögn sinni um málið á að enn sé nokkuð í að ferðaþjónustan nái sér á strik eftir tekjufall af völdum kórónuveirunnar. Samtökin leggja því til að ferðaskrifstofum sem hófu rekstur árið 2019 eða fyrr verði heimilt að greiða stofnfé til sjóðsins í fjórum jöfnum greiðslum fyrsta árið.

Nefndin óskaði eftir minnisblaði frá ráðuneytinu þar sem fram kæmi afstaða þess til framangreinds.

Í minnisblaði ráðuneytisins er bent á að skipting greiðslna í fjórar jafnar greiðslur hefði í för með sér að Ferðatryggingasjóður næði ekki lögbundinni lágmarkseign fyrr en allar greiðslur hefðu borist. Af því leiði að ekki yrði svigrúm til að lækka tryggingarfjárhæð ferðaskrifstofa í samræmi við nýja reiknireglu af því að sjóðurinn yrði ekki í stakk búinn til að veita þá tryggingavernd sem nauðsynleg væri fyrr en hann teldist fullfjármagnaður. Ráðuneytið telur að tillaga um skiptingu stofngreiðslu sé ekki til bóta fyrir frumvarpið en leggur hins vegar til að gjalddagi stofngjalds verði 1. september í stað 1. júlí til að veita ferðaskrifstofum aukið svigrúm til að fjármagna stofngreiðslur til sjóðsins og aðlaga sig að nýju tryggingakerfi.

Ef ég vík hér að endurskoðun reikninga er með 4. mgr. 1. gr. frumvarpsins lagt til að Ríkisendurskoðun verði falin endurskoðun reikninga Ferðatryggingasjóðs. Ríkisendurskoðun vakti í umsögn sinni um málið athygli á því að Ferðatryggingasjóður fellur ekki undir hugtakið ríkisaðili eins og það er skilgreint í 3. tölulið 1. mgr. 3. gr. laga um opinber fjármál. Það falli því utan starfssviðs ríkisendurskoðanda að endurskoða reikninga Ferðatryggingasjóðs. Nefndin leggur til að höfðu samráði við ráðuneytið að ákvæðið falli brott og leggur fram breytingartillögu þess efnis að stjórn sjóðsins verði falið að láta endurskoða reikninga hans.

Síðan er fjallað um hæfisskilyrði stjórnar. Í 1. mgr. a-liðar 2. gr. frumvarpsins er kveðið á um hæfisskilyrði stjórnar Ferðatryggingasjóðs. Þar segir að stjórnarmenn skuli ekki hafa hlotið dóm fyrir refsiverðan verknað í tengslum við atvinnurekstur samkvæmt þeim lögum er þar eru talin upp. Ríkisskattstjóri bendir í umsögn sinni á að sala ferðaþjónustu er virðisaukaskattsskyld samkvæmt lögum um virðisaukaskatt. Þar sem skatturinn er vörsluskattur sé eðlilegt að lög um virðisaukaskatt séu einnig tiltekin í því ákvæði frumvarpsins. Nefndin telur ábendinguna réttmæta og leggur til breytingu þess efnis.

Í lokin er fjallað um rafrænar umsóknir. Nefndin leggur einnig til að beiðni ráðuneytisins að við frumvarpið bætist ákvæði er kveða á um að leyfisumsóknir til Ferðamálastofu skuli vera á rafrænu formi í ljósi þess að gert er ráð fyrir að fjöldi ferðaskrifstofa sæki um aðild að Ferðatryggingasjóði á árinu. Breytingartillagan er gerð með vísan til þess að stefna stjórnvalda er að auka stafræna þjónustu við almenning og fyrirtæki en það feli í sér aukið gagnsæi og réttaröryggi að samskipti almennings og fyrirtækja við stjórnvöld séu á rafrænu formi og úrvinnsla mála verður einfaldari í framkvæmd. Breytingartillögur nefndarinnar eru að öðru leyti tæknilegs eðlis og er ekki ætlað að hafa efnisleg áhrif.

Síðan leggur nefndin til að nefndarálitið verði samþykkt með þeim breytingum sem koma fram í þessu skjali.

Hv. þm. Ásmundur Friðriksson var fjarverandi við afgreiðslu málsins en skrifar undir álit þetta með vísan til 4. mgr. 18. gr. starfsreglna fyrir fastanefndir Alþingis. Undir álitið rita sú sem hér stendur, Lilja Rafney Magnúsdóttir, Halla Signý Kristjánsdóttir, Ásmundur Friðriksson, Haraldur Benediktsson og Njáll Trausti Friðbertsson, hv. þingmenn, og síðan hv. þingmenn Helgi Hrafn Gunnarsson, með fyrirvara, Ólafur Ísleifsson, með fyrirvara, María Hjálmarsdóttir, með fyrirvara, og Sigurður Páll Jónsson, með fyrirvara.